Aumingja konan

Ef Margrét hefur ekki burði til þess sjálf að losa sig úr þeirri skömm að vera þingmaður eru þá ekki einhverjir henni nákomnir sem geta leiðbeint henni í hennar vanda?

Það á enginn að þurfa að lifa í skömm á sjálfum sér og sinni vinnu, það er að segja þeir sem hafa vinnu.

Ég þykist vita að kjósendur verði allir af vilja gerðir til að létta ánauðinni af rýjunni, en er ástæða til að bíða þess?

   


mbl.is Skammast sín fyrir að vera þingmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hún ætti að ganga á undan með góðu fordæmi og yfirgefa húsið. Varla er henni meinuð útganga.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.9.2011 kl. 12:01

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nei Elín dyr þinghússins eru örugglega ekki læstar. Annars virðast störf þingsins aðallega snúast um það að þingmenn komist aftur í frí eftir tveggja vikna vinnu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2011 kl. 12:20

3 Smámynd: GAZZI11

spurning hver þarf meiri áfallahjálp við eða blessað þingið

GAZZI11, 15.9.2011 kl. 12:22

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

GAZZI11, þjóðinni var ekki veitt nauðsynleg áfallahjálp vegna hrunsins, afleiðingin er sú að öllu er orðið snúið á haus og núverandi stjórn er jafnvel hiklaust kennt um hrunið.

Vissulega má um það deila um hvort núverandi ríkisstjórnin hafi verið óskeikul í sínum störfum. En um það verður ekki deilt að stjórnarandstaðan hefur ekkert annað gert en þvælast fyrir, skemma og eyðileggja, rétt eins og fyrir það eitt væru þeim greidd laun úr sjóðum landsmanna.

Dæmigerður  vilji stjórnarandstöðunnar til góðra verka á yfirstandandi þingi sést glögglega af því að hún tók heilan dag af störfum þingsins undir umræðu sín á milli um hvaða svipbrigði, stjórnarþingmenn og ráðherrar mættu sýna undir innihaldslausum ræðum stjórnarandstöðunnar, og hvaða svipbrigði væru óviðeigandi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2011 kl. 13:59

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Vel mælt.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 15.9.2011 kl. 14:33

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk, Heimir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2011 kl. 15:01

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Þessi einn vemmilegast karakterinn á þingi í dag getur alveg fundi fleira til að skammast sín yfir,.t.d. lágreist aðför hennar að flokksbróður sínum hér um árið.

hilmar jónsson, 15.9.2011 kl. 16:06

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú meinar sjúkdómsgreininguna sem hún sendi í tölvupósti um allar jarðir, Hilmar?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2011 kl. 16:57

9 Smámynd: hilmar  jónsson

Nákvæmlega..

hilmar jónsson, 15.9.2011 kl. 16:59

10 Smámynd: Sigurður Haraldsson

En það var satt sennilega mátt kyrrt liggja.

Sigurður Haraldsson, 15.9.2011 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband