Um margt athyglisverð fréttamynd

dæsdg 

Á myndinni sjást Álfheiður Ingadóttir, Þuríður Backman, Unnur Brá Konráðsdóttir og Bjarni Benediktsson koma Árna Þór Sigurðssyni til hjálpar þar sem hann liggur óvígur í götunni eftir árásina.

Þannig bregðast flestir við, af samkennd og fórnfýsi. En það gera félagarnir Pétur Blöndal og Birgir Ármannsson ekki, þeir horfa í forundran á þingmennina koma félaga sínum til hjálpar, stíga fimlega til hliðar og halda för sinni áfram.

Það er greinilega ekki í þeirra eðli að koma fólki til hjálpar, eða hafa samkennd með öðrum. Þeir hafa öðrum hnöppum að hneppa. Þeir eru Þingmenn, með stórum staf.


mbl.is Eggjum kastað í þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Já hún segir nokkuð myndin. Pétur og Birgir halda alveg karakternum í henni.

hilmar jónsson, 1.10.2011 kl. 18:13

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Satt er það,  mikilvægt er að detta aldrei úr karakter á hverju sem gengur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.10.2011 kl. 18:26

3 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Hér er myndband frá þessu öllu saman

http://www.youtube.com/watch?v=qI5fcAhUQVo

Halldór Sigurðsson, 1.10.2011 kl. 19:44

4 identicon

Það er jafn mikilvægt að koma til hjálpar þeim sem á hjálp þarf að halda og að trufla ekki þann sem þegar er með hjálp. Fjögurra manna teymi nægir til að hringja á lögreglu, hjálpa á fætur og hvað sem er, nema þeir einstaklingar séu vangefnir eða hálfvitar, sem þessir á myndinni eru varla. Þeir sem demonisera pólítíska andstæðinga sína og láta líta svo út sem þeir séu ekki mennskir, svo sem færir um samúð, eru aftur á móti jafn hættulegir samfélaginu og nazistarnir forðum voru, og slíkt pólítískt ofstæki, sama hjá hverjum það finnst, er versti óvinur þjóðarinnar og okkar raunverulegi sameiginlegi óvinur.

Enough (IP-tala skráð) 1.10.2011 kl. 21:17

5 identicon

Ef þú dyttir nú svona og værir mögulega hættulega slasaður, myndir þú vilja að lítill hópur manna inni dyggilega að því að hjálpa þér, eða að tugir manns myndu hópast saman, spyrja þá sem stæðu í björgunaraðgerðunum endalausra spurninga og trufla þannig þá sem reyndu að hjálpa þér og tefja tíman? Ég held þú vitir svarið. En hatrið er skynsemi þinni yfirsterkara!

Enough (IP-tala skráð) 1.10.2011 kl. 21:19

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ó,  nú skil ég enough, þessir þingmenn hafa fengið "hardcore" þjálfun að láta sér ekki hvorki bregða við sár eða dauða. Ég hef gersamlega misskilið þetta meinta tilfinninga- og skeytingaleysi þeirra.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.10.2011 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband