Hvar á að draga línuna Jón Valur Jensson - Við hvaða aldur nemenda mega kennarar byrja að riðlast á þeim?

Það hefur verið í fréttum undanfarið að breska lögreglan leitar að 15 ára enskri stúlku sem hljópst að heiman og til Frakklands með þrítugum kennara sínum.

Jón Valur Jensson guðfræðingur bloggar um málið skilur ekkert í þessu uppistandi út af engu og telur „ástarsamband“  15 ára stúlku og þrítugs kennara hennar, sem enn er unglingur að hans mati, hið besta mál og réttlætir það með fimm aldagömlu barnaníðingsmáli íslensku.

Jón Valur telur það vera sósíaldemókrataískt vandamál og úrkynjun að sjá ekki það fallega í svona „ástarsamböndum“. Jón þessi hefur líka reynt að gera lítið úr barnaníðingsmálum í hans kirkjudeild, sem tröllriðið hafa fréttum undanfarin ár.

Hvar á, hr. Jón Valur guðfræðingur, að draga línuna í kynferðissambandi nemenda og kennara? Við 13 ár, við 11 ár eða jafnvel við forskólaaldur? Við hvaða aldur hættir slíkt samband að vera „fallegt ástarsamband“ og verður eitthvað annað?

Þú ert ekki í lagi maður, fjarri því!

*Þessi færsla er skrifuð hér sem athugasemd við þessa færslu Jóns, því mér er meinað að gera athugasemdir á bloggi Jóns Vals, auk þess sem hann fjarlægir miskunnarlaust allar athugasemdir sem eru honum ekki að skapi.*

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kennarar mega EKKI hafa kynferðisleg samskipti við nemendur í grunn/framhaldsskólum.

Kannski eru til einhver grá svæði þegar fólk er komið upp á Háskólastig;

Ég ætla ekki leggja dóm á það.

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 25.9.2012 kl. 13:07

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nei, enda eru þeir fáir sem sjá eitthvað jákvætt, eða fallegt við slík sambönd. Og enn færri eru þeir sem sjá annað sem úrkynjun.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.9.2012 kl. 13:15

3 identicon

JVJ að mæla með sambandi ólögráða stúlku með kennara.. hvers vegna kemur það ekki á óvart. Kaþólska kirkjan er jú mikið í því að nauðga börnum, kennir börnum um að tæla presta.
Biblían mælir líka með nauðgunum á smástelpum sem eru hreinar meyjar.

Er JVJ kannski alveg eins og múslímar sem vilja og telja sig hafa rétt á að giftast 9 ára stelpum vegna þess að Mummi meinhorn gerði það

DoctorE (IP-tala skráð) 25.9.2012 kl. 13:28

4 identicon

P.S. Ég á 15 ára gamlan son, ef hann hlypist á brott með einhverri kerlingu, það væri ekki vafi í mínum huga að kerlingin væri níðingur

DoctorE (IP-tala skráð) 25.9.2012 kl. 13:36

5 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Ég tók einmitt eftir þessum afar ógeðfelldu og sjúklegu skrifum guðfræðingsins. Stúlkan er ólögráða auk þess kennarinn misbeitir stöðu sinni, þarna er augljóslega um margháttuð brot að ræða.

Það vekur furðu, að maður sem virðist vera í fullu starfi við að flytja þjóðinni siðaboðskap sinn, skuli vera svona illa áttaður í siðferðismálum.

Sveinn R. Pálsson, 25.9.2012 kl. 13:36

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég sé fyrir mér doctorE,  JVJ dásama fegurðina í hliðstæðu sambandi, væri stúlkan dóttir hans. JVJ hefur uppskorið það eitt að opinberað miður fallegan hugsunarhátt sinn, sem ég trúi að hann hafi ekki ætlað að opinbera.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.9.2012 kl. 13:46

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sveinn, það er endanlega ljóst að siðapostulinn er ekki sá sem hann gefur sig út fyrir að vera.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.9.2012 kl. 13:49

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég læt mér duga að lesa hér, ætla ekki að lesa grein JVJ, maðurinn hlýtur að vera með mjög sjúka siðverðiskennd.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.9.2012 kl. 14:00

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er ekki ofmælt Ásdís.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.9.2012 kl. 14:04

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

:( einmitt

Ásdís Sigurðardóttir, 25.9.2012 kl. 14:12

11 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

http://www.dv.is/skrytid/2012/9/25/samband-24-ara-songvara-og-12-ara-stulku-gagnrynt/

Þetta er örugglega afskaplega fallegt í hans huga líka.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 25.9.2012 kl. 17:50

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ætli honum rísi ekki hold við lesturinn?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.9.2012 kl. 19:40

13 identicon

Það eru alltaf til undantekningar, en skrýtið alvöru kaþólikki myndi ekki hafa samúð með framhjáhaldara í lausaleik, sama á hvaða aldri. Sorglegt hvað fáir standa vörð um gömlu og góðu gildin, sama þó þeir telji sig tilheyra trúfélagi, vera íhaldsmenn eða eitthvað slíkt. Lögleysan veður uppi og hefur yfirtekið allt. Persónulega finnst mér of mikill munur á þroska þarna, og ekki ganga upp í nútímasamfélagi. En að háskólanemar megi ekki vera með sínum kennurum, sem þeir ekki mega, eða að fólk á sama vinnustað megi ekki trúlofast, það kalla ég valdnýðslu og þrælslund og aumingjaskap að líða slíka kúgun. Þeir sem láta valltra yfir sig með þessu móti ættu bara að skammast sín. Lög eru til að hlýða þeim, en heimskan þó ekki. Fólk ætti að taka sín ástarmál almennt alvarlegar og þeir ekki að hneykslast á öðrum sem lifa svínslífi þarna úti, sama þó þeir fari ótroðnari slóðir í þeim málum en þeir sjálfir. Lengi lifi heilagt hjónaband og sönn ást, og deyji skrýlsmennskan og svínslifnaðurinn.

Spyrjið um gömlu göturnar. (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 06:40

14 identicon

Hvar ertu Jón Valur þegar einhver VILL heyra í þér?

Væntanlega að venju að böggast í fólki sem EKKI VILL heyra í þér.

santos (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 08:13

15 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er nú þannig "Spyrjið um gömlu göturnar", að téður kaþólikki er ekki venjulegur í einu eða neinu tilliti. Hann aðlagar reglurnar eftir hendinni og hentugleikum hverju sinni og blæs ekki úr nös.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.9.2012 kl. 08:49

16 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Góður punktur hjá þér santos!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.9.2012 kl. 08:50

17 identicon

Hann er með þröngan hópa já-manna í kringum sig.. sem lepja slefið úr honum. Ég vorkenni þeim öllum

DoctorE (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 09:07

18 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Heldur hann að Ragnheiður Eggertsdóttir hafi gifst Magnúsi Sýslumanni vegna ,,ástar"?

þetta hefur allt verið ákveðið af fjölskyldunum enda grunnariðið fjárhagslegt dæmi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.9.2012 kl. 10:54

19 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

JVJ afrekaði það DoctorE, að vera rekinn frá Útvarpi Sögu, hvar hann var með pistla. Hann mun hafa gengið fram af stjórnendum Útvarps Sögu, sem þó kalla ekki allt ömmu sína í skítkastinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.9.2012 kl. 11:02

20 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ómar, JVJ veit allt um gjörðir, samtöl, atferli og tilfinningar forfeðrana. Hann getur t.d. rakið nákvæmlega í löngu máli afstöðu Jóns Sigurðssonar (forseta) til einstakra mála líðandi stundar. Hann lítur á sig sem sérlegan sendiherra Jóns Sig.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.9.2012 kl. 11:10

21 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sæl verið þið hér. Langaði til að bæta mér við þetta spjall en það vill nefnilega svo til að ég í störfum mínum þarf að umgangast og eiga við ólögráða einstaklinga.

Það sem slær mig mest varðandi fréttir eins og þessa er að ólögráða einstaklingar eru viðkvæmar sálir sem ekki hafa þroska ó svona sambönd með fullorðnum sem gætu tæknilega séð verið foreldrar þeirra.

Sjálfur er ég að verða 40 ára og sé þessa krakka eins og þau gætu verið börnin mín þó þau séu það ekki. Eins get ég ekki séð neitt "fallegt ástarsamband" í þessu.

Sjálfur vona ég eins og flestir aðrir á þessari síðu að JVJ geri betri grein fyrir máli sínu svo hann verði ekki stimplaður af samfélaginu.

Með kveðju

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 26.9.2012 kl. 12:20

22 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég held Kaldi að sá tími sé löngu kominn og liðinn að þjóðin hafi náð að mynda sér skoðun á JVJ.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.9.2012 kl. 18:25

23 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Jú Axel ætli það sé ekki rétt hjá þér.

Sjálfur er ég aðeins málkunnugur honum en hef ekki talað um neitt nema evrópumál við hann og bók sem hann gaf út fyrir nokkru.

Að öðru leiti þá get ég lítið sagt um hann...

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 26.9.2012 kl. 19:55

24 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef starfað sem kennari í 32 ár.  Ekki við fulla kennslu heldur sem skrautskriftarkennari á námskeiðum.  Ég hef alltaf litið á það sem óskrifaða reglu að kennari eigi ekki í nánum samskiptum við nemanda.  Það segir sig eiginlega sjálft að það sé regla.  Óháð aldri nemanda.  Eins og það hefur verið orðað:  "Svona gera menn ekki". 

Jens Guð, 26.9.2012 kl. 23:33

25 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jæja er hann í réttunum blessaður karlinn að skoða gimbrarnar. Jú Jóhann ég hef heyrt þessa "ástarsögu" úr laugunum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.9.2012 kl. 23:36

26 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nákvæmlega Jens.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.9.2012 kl. 23:37

27 Smámynd: Óli Jón

Ég hvet til þess að innlegg tímasett 22:10 verði fjarlægt, enda á það ekkert erindi í þessa umræðu. Gætum okkar á því að láta umræðuna enda í svona upphrópunum, af nógu er nú að taka samt.

Óli Jón, 27.9.2012 kl. 10:32

28 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nú setur þú mig í vanda Óli Jón. Þetta umrædda innlegg er sennilega á gráu svæði. Vandinn er að staðsetja þetta gráa svæði og ákveða stærð þess. Ég hef aðeins einu sinni fjarlægt innlegg, þar var hvatt til ofsókna gegn ákveðnum hóp fólks og því ekki spurning að of langt var gengið.

Hættan er, að fari menn á annað borð að fjarlægja færslur missa þeir fljótt "stjórn" á útþurkununum og fara að beita þeim hægri vinstri,  nákvæmlega eins og Jón Valur gerir og ég hef gagnrýnt hann fyrir. Mér hugnast ekki að gerast sporgöngumaður hans.

Ég tel því að skárri kostur sé að láta innleggið standa, enda tel ég það meira á ábyrgð höfundar en mín, þó um það megi deila.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.9.2012 kl. 11:28

29 identicon

Það má vel hneykslast á perralegum skrifum hans JVJ en það er vert að hafa það í huga að ríkistrú íslands styður þetta algerlega líka.. trúin sem þið eruð hugsanlega skráð í án þess að hafa kynnt ykkur út á hvað hún gengur.

DoctorE (IP-tala skráð) 27.9.2012 kl. 11:32

30 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

"Þættinum hefur borist bréf". Fyrirmæli hafa borist frá ritstjórn mbl.is að fjarlægja það innlegg sem um er rætt hér að ofan. Þeim fyrirmælum bar að hlýta og hefur innleggið verið fjarlægt. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.9.2012 kl. 12:18

31 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Svo... það er í lagi að gefa í skyn að hann er ekki alveg allt í lagi, en ekki í lagi að gefa í skyn að hann er ekki alveg allt í lagi?

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 27.9.2012 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband