Vændislaust Ísland! - Er óneitanlega dulítið Framsóknarlegt markmið

Það eina sem þarf til að gera Ísland að vændislausu landi er að Framsóknarflokkurinn taki málið upp á sína arma og geri það að kosningamáli. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei verið feiminn að lofa óframkvæmalegum hlutum.

Framsóknarflokkurinn lofaði okkur t.a.m. vímuefnalausu Íslandi árið 2000. Framsókn afgreiddi það kosningaloforð á sama hátt og önnur slík, jafnan.  „No problemo!“

Allsherjar Framsókn Íslands er að hefjast, góðir hálsar. Við erum ekki að tala um einhvern skitinn „Framsóknar áratug“ framundan, nú tölum við í öldum.  „Framsóknar öldin“ er að ganga í garð.

Verði okkur að góðu!

  


mbl.is Tekst Íslandi að útrýma vændi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

aumingja vændiskonurnar.

eina sem þetta gerir er að senda vændisstarfsemina dýpra í undirheima.. með öllu því ógeði sem þar finnst.

held sé nær að horfa til amsterdam með lausnir.

núna munum við sjá fleiri nauðuga kynlífsþræla t,d.

sveinn ólafsson (IP-tala skráð) 19.4.2013 kl. 17:16

2 identicon

Framsóknaröld er betri en krata (sossa) öld.

Sjáðu ástandið í Svíþjóð með 70 ára kratastjórn, með síðustu ára undantekningu, þar sem Moderatar (sem eru kratar til hægri) hafa stýrt.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.4.2013 kl. 19:18

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú vilt sem sagt meina V. Jóhannsson að stjórn efnahagsmála í Svíþjóð síðustu 70 árin sé verr hepnuð en sú íslenska á sama tíma undir forsæti íhaldsins og Framsóknar til skiptis?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.4.2013 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband