Hver gætir okkar fyrir þeirra gæsku?

Vesturlönd leita núna logandi ljósi að réttlætingu þess að varpa sprengjum á Sýrland í þeim tilgangi að drepa enn fleira fólk í nafni frelsisins, sem þau hafa gefið sér undarlegt einkaumboð að útdeila.

 

Allt í nafni Drottins, ekkert minna, auðvitað. Það hljómar betur þannig.

 

Allir „góðu gæjarnir“ hérnamegin veggjar  segjast vera að vernda okkur fyrir hinu illa, en hver gætir okkar fyrir allri þeirri "góðvild" sem þeir ná ekki að útdeila öðrum?

 

 

 


mbl.is Getum ekki setið aðgerðalaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll æfinlega; Axel Jóhann !

Þakka þér fyrir; þessa verðugu ádrepu.

Hvet þig jafnframt; til þess að fara inn á síðu Jóns Baldurs L´orange, hins gamla spjallvinar míns, þar sem þeir Þorsteinn Sch Thorsteinsson, annar vinur minn til - og Daníel Sigurðsson tæta niður málafylgju Jóns síðuhafa algjörlega, þar sem hann virðist hafa mengast, af áróðri Obama Skrattakolls, og vina hans.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, suður yfir fjallgarð /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.8.2013 kl. 23:04

2 identicon

Hver gætir okkar fyrir þeirra gasi?

Er ekki nóg af gasgrímum þarna suður í henni Grindavík?

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 30.8.2013 kl. 23:22

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Óskar, illa reyndist þér hann Hádegismóri. Bestu kveðjur!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.8.2013 kl. 08:30

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Haukur, liggur þú undir stöðugum árásum Sýrlendinga?

Hér eiga allir gasgrímur en þær eru eingöngu notaðar til að verjast viðrekstrinum úr honum Surti gamla.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.8.2013 kl. 08:35

5 identicon

Nú veit ég ekki hvort þú getir lesið þýsku, Axel Jóhann. 

En hér er athyglisverð grein eftir Markus Somm, ritstjóra Basler Zeitung.

Greinin heitir: Um mistök (failure) friðarsinnans. Barack Obama talar mikið en gerir fátt. Þetta veit Baschar al-Assad - og drepur börn.

http://bazonline.ch/ausland/naher-osten-und-afrika/Vom-Scheitern-eines-Pazifisten/story/11242971

 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.8.2013 kl. 12:58

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er ekki bull, bull Haukur, þó það sé sett fram á þýsku?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.9.2013 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband