Hengjum boðbera slæmra frétta.

Það hefur löngum verið þekkt aðferð að hengja boðbera slæmra frétta. Átti ekkert að fréttast af molunum sem Geir ætlaði að ýta af borði alsnægtanna til fórnarlamba Breiðavíkurógeðsins fyrr en þær væru orðin hlutur?

Eru Geir og hans lið virkilega orðið svo siðblint að það sjái ekkert athugavert við þetta.

Ígildi 13 lágmarksbóta þarf til að jafna kostnað við ferðalög varaformanns Sjálfstæðisflokksins og maka hennar til Kína í tengslum við Ólympíuleikana.

Þar hefur örugglega ekkert verið skorið við nögl í aðbúnaði og hollustu. Enda mikið í húfi, velferð ráðherrans og hans og því er ekki horft í aurinn.

En í þessu máli, þar sem virðing þjóðarinnar er í veði gagnvart þegnum sínum, þá er allt annað uppi á teningnum, þá er horft í aurinn. Þetta eru jú allt ógæfumenn.

 


mbl.is Birt án samþykkis ráðuneytis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þetta mál er bara enn á vinnslustigi og hefur ekki verið afgreitt í ríkisstjórn.

Það er skrýtið að Breiðuvíkursamtökin geri athugasemdir, sem ekki hefur verið farið yfir og leggi málið upp í fjölmiðlum áður en það hefur verið afgreitt í ráuneyti og ríkisstjórn.

Það er óeðlilegt að mótmæla ákvörðun sem ekki hefur verið tekin og sennilega hafa samtökin spillt fyrir málinu með frumhlaupi sínu.

Jón Halldór Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 17:18

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Jón Halldór.

Samkvæmt yfirlýsingu frá Breiðuvíkursamtökunum þá er málið hreint ekki svona vaxið. Hér stendur orð gegn orði. Veit ekki hverju ég á að trúa.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.9.2008 kl. 21:31

3 Smámynd: Gulli litli

Var ad skúbba þig eða klukka eða þú veist....

Gulli litli, 5.9.2008 kl. 13:53

4 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Verð að bæta því við að mér skilst að Breiðuvíkursamtökin hafi virt þann frest sem þau gáfu til opinberrar umfjöllunar.

Ef svo er finnst mér eðlilegt að þau hefji umræðu um málið og ég tel þær upphæðir sem nefndar hafa verið sem bætur, og lágar.

Hins vegar tel ég að þú bætir ekki svona meðferð með peningum.  Ég tel að sálfræðimeðferð og félagsráðgjöf ætti að stnda þessum mönnum til boða öllum saman og nám.

Að eiga ekki kost á menntun verður helst bættur með mennntun.

Að komast yfir miðsþyrmingar og að vera fjarlægður af heimili sínu er eitthvað sem menn geta kannski unnið úr á löngum tíma með til dæmis sálfræðiaðstoð. 

Jón Halldór Guðmundsson, 6.9.2008 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband