Lítið gleður vesælan

 

klappstýrur2Eitthvert furðulegasta fyrirbærið í Bandarískri menningu eru klappstýrurnar. Varla koma tveir saman til að horfa á íþróttaleik án þess að klappstýrur komi við sögu.

Stöffið virðist ganga út á að nokkrar 15- 16 ára stelpur veifi dúskum, sýni á sér ber lærin og maga, sprikli örlítið, ekki ólíkt gógó dansi, sem að öllu jöfnu þykir ekki boðlegur sómakærum bandarískum stúlkum á þessum aldri.

Gífurleg og óútskíraleg ásókn er í að komast í þessi klappstýrulið. Vonbrigði þeirra sem ekki komast í liðið eru mikil, svo mikil að stúlkur hafa freistast til að láta „slys henda“ einhverra hina heppnu til að skapa rúm fyrir þá óheppnu. Dæmi eru jafnvel um morð.

klappstýra1Svo var það þessi 33 ára kona sem átti sér þau háleitu markmið að verða klappstýra. Til þess notaði  hún nafn 15 ára dóttur sinnar, komst í liðið, mætti á æfingar og veislur, áður en upp komst.

Það hlýtur að vera stórlega athugavert við sjón eða kenndir þeirra, sem horfðu á þessa 35 ára konu sprikla og sáu fyrir sér 15 ára stúlku, nema hvorutveggja sé.


mbl.is Stal nafni dóttur sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Ég var einmitt að velta vöngum yfir því hvað klappstýruhlutverkið hefur mikla vigt í Bandaríkjunum.  Það virðist vera æðsti draumur unglingsstelpna að verða dúskadama,  eins og Norðmenn kalla fyrirbærið.  Og æðsti draumur bandarískra mæðra er að dætur þeirra verði dúskadömur. 

  Þær unglingsstelpur sem ná þessu eftirsótta markmiði njóta þess alla ævi í ferilsskrá.  Merkilegri titil getur bandarísk kona varla borið en að hafa verið dúskadama.

Jens Guð, 15.9.2008 kl. 03:19

2 Smámynd: Gulli litli

God bless Amerika..

Gulli litli, 15.9.2008 kl. 09:08

3 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Kynjamisrétti;  Hvernig væri með að karlmenn fái að vera klappstýrar og dúskaherrar í blak-, handbolta- og fótboltakeppnum kvenna!  Þeir þyrftu að æfa sig fyrst í píkuskrækjum og rassaköstum, en ég er viss um að skipuleggjendur "Gay-Pride" gleðigöngunnar myndu vilja mennta þá í þessu.

Ég er að vísu ekki að bjóða mig fram, enda kominn með stóran gamlan og sigin rass og bjórvömb svo loðna að ekki sést í naflann.

Munið frjálsu bloggsíðuna;  http://blekpennar.comKær kveðja, Björn bóndiïJð        

Sigurbjörn Friðriksson, 17.9.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband