Laug Geir?

Ekki er óeðlilegt að draga þá ályktun af þessu að Landsbankinn sé að undirbúa kaup á Glitni. Ofurskiljanlegt af þeirra hálfu, enda hafa þeir lýst áhuga sínum á því.

En Landsbankamenn áttuGeir „leynifund“ með forsætisráðherra. Þar var staða mála rædd að sögn forsætisráðherra. Ekki var minnst einu orði á sameiningu Glitnis og Landsbankans!  Já, já einmitt.

En sennilega og einmitt vegna þess að ekki var minnst á þessi mál á fundinum, þá eru Landsbankamenn  nú á hlaupum að tæma alla bauka og kirnur til að safna saman öllu handbæru fé, til kaupana.

Það er vonandi að kappið á að koma Glitni í hendur nýjum eigendum sé ekki það mikið að það gerist áður en ríkið eignast Glitni með formlegum hætti. 

 


mbl.is Straumur eignast hluta Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Já, Geir laug! (Hey, þarna er komið fínt viðurnefni: Geirlaug. Hahaha.)

Hann er búinn að vera að ljúga í allt sumar að "hér sé allt í fínasta lagi og engin hætta á ferðum". Svo talar hann um að þessi vandræði sem nú eru hafi verið ófyrirsjáanleg! Kommon, ég og margir fleiri sem ég veit um hafa verið að vara við því í mörg ár að gjaldþrot Bandaríkjana sé fyrir löngu síðan orðið óhjákvæmilegt með tilheyrandi hruni á hinu vestræna hagkerfi, eina spurningin var í rauninni hversu lengi þeim tækist að fresta því. Svo hefur maður bara verið rakkaður niður af heilaþvegnum frjálshyggjustrákum, en ætli þeir haldi því til streitu nú þegar gjaldþrotið er orðið að veruleika? Eins lengi og þessir menn halda því fram að "enginn hafi getað séð þetta fyrir" þá eru þeir augljóslega og algerlega vanhæfir til starfa sinna og eru ekki að gera neitt nema skíta lengra upp á bak svo sletturnar ganga í allar áttir.

Komum öll á Austurvöll eftir hádegi í dag þegar Alþingi verður sett, mætum þessum mönnum á þeirra heimavelli og sýnum þeim viljann í verki. Tonn af fiðri og þúsund lítra af tjöru takk!

Guðmundur Ásgeirsson, 1.10.2008 kl. 11:31

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Guðmundur, takk fyrir fróðlegt og áhugavert innlegg.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.10.2008 kl. 11:34

3 Smámynd: Gulli litli

Hmmmmm

Gulli litli, 1.10.2008 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband