Ekki svikin vara?

Hamb_5og5Hvernig stendur á því að sumt nautahakk er  ekki hægt að steikja eða brasa á pönnu því það fer á flot í vatni sem úr því kemur og soðnar en steikist ekki? 

Hvar og hvernig komst vatnið  í hakkið?  Til hvers var því blandað í hakkið? Liggur það ekki í augum uppi? Hvernig stendur á því að hamborgarar eiga það til að hverfa á pönnunni?

Hvað verður um allt kýrkjötið sem til fellur, kannast einhver við að sjá það til sölu í einhverju formi? Það skyldi þó ekki vera að það stökkbreytist í  nautakjöt  á  leið sinni frá sláturhúsi í kjötborðið?

Engin brögð í tafli? Góður þessi!


mbl.is Segja engar vísbendingar um brot á reglum um kjöt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Kýrkjöt er víða selt í verslunum í dag, undir nafninu nautgripahakk og er oft selt í sumum verslunum til að sýna lág verð, og er alls ekki það sama og "ungnautahakk" sem er af ungnauti UN1,  þannig að þeirri spurningu þinni er svarað hvað það  varðar, varðandi það að hamborgarar verða að vatni eða þá að þeir hreinlega hverfi, þá get ég ekki með vissu sagt til um það, enda aldrei lent í því.

Guðmundur Júlíusson, 11.9.2009 kl. 21:19

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það Guðmundur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.9.2009 kl. 21:25

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hvað ertu að skammast Axel, það er búið að gefa það út af "samtökunum" að ekkert svindl sé stundað - bara blaður í stráknum frá Hálsi eða þannig

Jón Snæbjörnsson, 11.9.2009 kl. 21:29

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jón, þá þarf ekki frekari vitnana við. Málið dautt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.9.2009 kl. 21:36

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jón Bjarnason er búinn að staðfesta þetta líka sem Jón segir. En samt sýður helvítis hakkið í pönnunni minni

Finnur Bárðarson, 11.9.2009 kl. 21:45

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

steindautt - ekki lýgur Jón Bjarnason

Jón Snæbjörnsson, 11.9.2009 kl. 21:55

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þið eruð tæpt hænufet frá því að sannfæra mig strákar!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.9.2009 kl. 21:58

8 identicon

Hver leyfir kjötiðnaðarmönnum að sprauta vatnsbindandi efnum í kjúklingabringur? Hvaða stjórnmálamenn leyfa kjötiðnaðarmönnum að blanda kartöflumjöli í nautahakk? Þetta eru hrein og klár vörusvik sem gerð hafa verið lögleg m.a. vegna lélegra fordæma t.d. í Danmörku þar sem kjötiðnaðurinn hefur fengið að vaða uppi í lágkúru áratugum saman. Þegar ég kaupi nautahakk vil ég að eingöngu sé nautahakk í hakkinu. Þau rök að ekki sé nein drottning í Drottningarsultunni frá Ömmusultum á hér síður við.

Pétur Ó. (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 22:10

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú segir nokkuð, Pétur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.9.2009 kl. 22:26

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

maður bara glaðvaknar við gusganginn í Pétri

Jón Snæbjörnsson, 11.9.2009 kl. 22:44

11 Smámynd: hilmar  jónsson

Sprauta vatnsbindandi efnum í kjúklingabringur ? Er það í alvöru gert ?

hilmar jónsson, 11.9.2009 kl. 22:45

12 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

tja Pétur hér fyrir ofan vill meina það hmm - hvar er Finnur ? hann vill kanski leggja orð í "belg"

Jón Snæbjörnsson, 11.9.2009 kl. 22:48

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já, já Hilmar það er nauðsynlegt því annars yrðu kjúklingarnir svo skelfing þurrbrjósta.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.9.2009 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.