Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Styrkur að vera á vanskilaskrá – segja Bjarni og Sigmundur!
14.10.2009 | 15:43
Það er kunnara en að frá þurfi að segja að lendi menn á vanskilaskrá eru þeim flestar bjargir bannaðar, það þekkja þeir manna best sem reynt hafa.
Því eru það ný og furðuleg sannindi að staða Íslands muni styrkjast þegar og ef landið kemst í greiðsluþrot og vanskil.
Ekki er fyrir alla að skilja að staðna skuldara batni við það að skuldin fari í lögfræðilega innheimtu.
Þetta er málflutningur Íhaldsins og Framsóknar í dag varðandi erlendar skuldbindingar þjóðfélagsins. Hafa þeir sömu skilaboð að segja mér og þér varðandi skuldir okkar í bönkunum?
Segja þeir borgið ekki, látið setja kröfuna í innheimtu, látið lögfræðingana fá málið, látið þá margfalda skuldina eins og þeim einum er lagið -- og þið eruð á grænum sjó!
Segja þeir það?
Hvaða, hvaða, helv. bull er í gangi!!!
En sé bullið ekki bullið eitt, eru þá ekki allar skuldbindingar undanfarinna ára, hvaða nafni sem þær nefnast ekki hjóm eitt?
Ég, þú og allir hinir skulda þá ekki neitt, spurningin verður aðeins hvað eigum við inni hjá bönkunum!
Hvað kallast þetta ævintýri?
Spennandi!
Segja stöðu Íslands styrkjast 23. október | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 1027594
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Athugasemdir
Nú er aldeilis lán í óláni. Lán er náðargjöf. Skuld er dyggð. Afborgun er aflífun. Skilafólk er sakafólk og kjánar. Lengi lifi Nýja Ísland! Fáum við þá ekki nýja kennitölu fyrir skerið?
Björn Birgisson, 14.10.2009 kl. 16:04
Það kallast nú ekki vanskilaskrá ef það er óvíst hvort við eigum að borga eða ekki.
Ef við vinnum málið fyrir dómi þá má kannski frekar segja að við séum fórnarlömb eineltis, þar sem stóru þjóðirnar hafa verið að ráðast á okkur og hóta okkur fyrir ekki neitt.
Andri (IP-tala skráð) 14.10.2009 kl. 16:16
Ný kennitala fyrir skerið, málið leyst, Björn.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.10.2009 kl. 16:23
Ef þú lendir, Andri, í ágreiningi við bankann þinn hvort þú eigir að borga eða ekki, hver er líklegri að hafa betur þú eða bankinn? Fórnarlamb eða ekki?
Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.10.2009 kl. 16:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.