Bloggfærslur mánaðarins, maí 2013

Til hamingju Ísland

Það er vert að óska nýjum forsætisráðherra og  ríkisstjórn hans velferðar í starfi sínu fyrir land og þjóð. Full ástæða er þó að óttast að í samstarfi við íhaldið verði velferðin ekki allra.

Íslensk alþýða veit af biturri reynslu að það er regla, frekar en undantekning, að réttlæti  og gjafir íhaldsins renna helst þangað sem þeirra er síst þörf.

 

 


mbl.is Sigmundur Davíð fékk lyklana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þunnur þrettándi - "gerilsneyddasta" stefnuskrá Íslandssögunnar

Stefnuskrá verðandi ríkisstjórnar ber sterkan keim úr framsóknarfjósinu, öll mál eru galopin , ekki einungis í báða enda heldur allan hringinn.

 

Það er slegið í og úr. Kosningaloforðum flokkanna á klárlega að fresta fram að næstu kosningum,  til endurbrúks. Kemur ekki á óvart.

 

Það er ekki nema von að það hafi tekið mennina 3 vikur að semja þetta plagg. Það er ekki hlaupið að því að semja langa stefnuskrá sem er svo „gerilsneydd“ að hún segi nákvæmlega ekki neitt um ekkert.

 

Menn hafa velt fyrir sér nafni á stjórnina – platstjórnin – væri við hæfi.

 

 


mbl.is Íslensk þjóðmenning í hávegum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fékk Guðni Th. stjórnarmyndunarumboðið?

Sigmundur Davíð Framsóknarformaður hefur aðeins haft stjórnarmyndunarumboðið í nokkra klukkutíma en samt eru fjölmiðlar gersamlega að fara á límingunum vegna þess að Sigmundur er ekki búinn að hóa saman stjórninni sem þeir réðu Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing til að mynda fyrir þá.

Guðni hefur mjög gengist upp í því hlutverki að hafa yfir umsjón sem stjórnarmyndunarviðræðum, spá í hjartslátt og andardrátt formanns Framsóknar, hvert orð hans og gjörð. Nær væri fyrir Guðna og fjölmiðla að taka hjartalínurit af formanni Sjálfstæðisflokksins sem nötrar af ótta yfir pólitískri framtíð sinni að verða aldrei forsætisráðherra eins og hann var borinn til að verða.

Þangað til forsetinn kallar Guðna á sinn fund og felur honum formlega stjórnarmyndun væri rétt að hann og fjölmiðlar önduðu með nefinu í nokkra daga og leyfðu formanni Framsóknarflokksins að vinna í friði og viðhafa það verklag við stjórnarmyndunina sem hann sjálfur kýs.


mbl.is Segir Sigmund leggja ákveðnar línur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband