Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
Hvers eiga Íslendingar að gjalda?
24.4.2009 | 00:14
Það er hræðilegt til þess að vita að þeir Elton John og Sir Paul McCartney eigi varla fyrir salti í grautinn og Robbie Wiljams og Tom Jones hangi nánast á horriminni.
Svona fréttir eru ekki til þess fallnar að lappa upp á laskað ástand Íslensku þjóðarsálarinnar.
Þetta verður að öllum líkindum til þess að dýpka enn áhrif kreppunnar á Íslandi, því þetta er án vafa mikið tilfinningarlegt áfall fyrir þjóðina.
Það er þó bót í máli og gleðilegt til þess að vita að Beckham hjónin hafi ekki enn þurft að grípa til niðurskurðar á sínu óhófslífi.
.
.
Poppgoð í kreppu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ljóstýra í húminu
4.12.2008 | 12:53
Þessi styrking krónunnar á fyrstu klukkutímunum eftir að krónan var sett aftur á flot er örlítið jós í öllu myrkrinu.
Vonandi verður þetta eitt af jólaljósunum í ár, jólaljós sem ekki verður tekið niður eftir jólin.
Krónan styrkist um 4% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Margnota umbúðir
28.11.2008 | 00:55
Þær eru víða matarholurnar. Útfararstjórunum hefur hreinlega blöskrað sóunin og gripið til sinna ráða.
Líkkistusvik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er skítalykt af málinu?
25.11.2008 | 16:13
Er bankaleyndin svokallaða, hulinshjálmur glæpa?
22.11.2008 | 23:25
Lárus Welding fyrrverandi forstjóri Glitnis banka hf.,harmar að Morgunblaðið birti trúnaðarupplýsingar um að verklagsreglur hafi verið brotnar í Glitni, skiljanlega, hvað annað?
Getur verið að Lárus Welding sé þeirrar skoðunar að lögbrot og brot á verklagsreglum verði lögleg og hið besta mál með því að skrá glæpinn sem trúnaðarmál?
Er óeðlilegt að ætla út frá þessari hugmyndafræði forstjórans fyrrverandi að ýmislegt miður fallegt sé falið bak við hið sakleysislega orð bankaleynd?
.
Hverju er gaukað að Lalla þarna, feitum díl?
Lárus Welding: Rangt að reglur hafi verið brotnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýtt nafn í burðarliðnum
20.11.2008 | 09:14
365.hf fá enn á ný nýtt nafn. Kominn tími til, viðskiptavinir fyrirtækisins voru farnir að venjast þessu. Hvað ætli það verði núna, Endaleysa.hf?
Nýtt nafn og stjórn hjá 365 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrsta bindi Hvítbókar komið út.
3.11.2008 | 19:53
Það er grafalvarlegt ef í ljós kemur að FME hefur lagt blessun sína yfir þetta og á þeirri forsendu að annars yrði yfirmannaskortur í bönkunum! Spyrja má hvort þessir menn hafi einhvern tíma verið hæfir stjórnendur?
Þetta er eins og leiða kófdrukkinn mann undir stýri á rútu fullri af fólki og hann látinn aka, á þeirri forsendu að hann væri sá eini sem hefði rútupróf.
Ef þetta verður látið standa, er dag ljóst hvernig stjórnvöld ætla að standa að verki við hreingerninguna. Sukkinu og svínaríinu verður sópað undir teppið. Vafasamt er að nokkur önnur þjóð búi yfir jafn mikilli reynslu og státi af jafnmörgum reynsluboltum, í þeirri íþrótt og Íslendingar.
Hvítbókin svokallaða verður þá nákvæmlega eins og hún var sýnd í Spaugstofunni á laugardaginn.
FME hefur ekki samþykkt niðurfellingu skulda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Viðskiptabannið á Kúbu er glæpur.
30.10.2008 | 00:13
Það er löngu orðið tímabært að aflétta viðskiptabanninu af Kúbu. Þrjú ríki þráast enn við, Bandaríkin, Palau og svo auðvitað Ísrael. Þetta var fyrst broslegt, síðan grátlegt en núna er þetta hreinn og klár glæpsamlegur vitsmunaskortur.
Það sem aðallega strandar á er sú afdráttarlausa krafa að eignum Bandaríkjamanna á Kúbu, sem þjóðnýttar voru, verði skilað til fyrri eigenda.
Það broslega í málinu er að þetta voru að megninu til eigur Mafíunnar. Bandarísk stjórnvöld hafa gegnum tíðina löngum ástundað einkennilega hagsmunagæslu, vægt orðað.
Á Kúbu býr gott og yndislegt fólk, sem ekki hefur unnið til þess sem viðskiptabannið hefur á það lagt, ekki frekar en almenningur á Íslandi verðskuldar þær þrengingar sem framundan eru.
Efri mynd: Svarta fánaborgin í Havana
Neðri mynd: Höfundur í paradísarsiglingu.
SÞ vill aflétta viðskiptabanni á Kúbu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
„Vonsviknir gullgrafarar“
29.10.2008 | 12:43
Af hverju eru blessaðir Norðmennirnir, frændur okkar svona afundnir?
Ætli það tengist brostnum væntingum þeirra að geta farið til Íslands með gullgrafarahugafari, verslað feitt án þess að borga neitt, því ísl.krónan væri verðlaus.
Mér sýnist hér eigi jafna sök, gírug kortafyrirtækin og græðgi korthafa.
.
Norðmenn reiðir vegna útreikninga kortafyrirtækja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvort á heilbrigðiskerfi að þjóna hag fjármagnseigenda eða sjúkra?
20.10.2008 | 20:22
Er eitthvað sem við getum lært af Bandaríska heilbrigðiskerfinu annað en að einmitt þannig viljum við ekki hafa okkar kerfi?
Þó eru til menn Íslenskir sem horfa til þess Bandaríska með þrá og blik í auga því í því kerfi eru það hagsmunir fjármagnseigenda sem ráða för, en ekki hagsmunir sjúkra og þjáðra, sem ætla mætti að væri grundvallarmarkmið kerfisins.
.
Samstarf við Bandaríkin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)