Færsluflokkur: Lífstíll
Ökusvín
31.8.2011 | 22:07
Eitthundrað og fimmtíu þúsund króna sekt fyrir svona dauðans akstur er brosleg refsing, þó því til viðbótar komi 3ja mánaða svipting ökuréttinda og heilir 3 punktar í ferilskránna.
Kappinn glottir eflaust út í annað án þess að gera sér grein fyrir að lögreglan forðaði honum kannski frá því að kála sér, eða það sem verra væri, að drepa einhverja aðra. Svona dauðans hraðakstur er ekki einkamál þeirra sem hann stunda.
Þriggja mánaða varðhald ásamt upptöku á ökutækinu væri nær lægi fyrir svona glæpsamlegan akstur, ásamt þriggja ára sviptingu ökuréttinda.
Það gæti náð glottinu af svíninu.
Mældur á 201 km hraða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Vá fyrir dyrum
2.8.2011 | 12:10
Femínistafélagið þarf að bregðast hart við og setja upp vegatálma og slá femínistaskjaldborg sinni um Biskupstungurnar til að verja þær fyrir ágangi saurkarla, sem víst er að hópast muni með lafandi tungur í Tungurnar í þeirri von að þessum föngulegu konum bregði fyrir á dagatalsklæðunum einum.
Klárlega er Kvenfélagið í Biskupstungum að gera kvenlíkamann að söluvöru, því þarf femínistarétthugsunin að láta gera dagatalið upptækt og á eld kasta.
Til að tryggja femíníska rétthugsun þarf að setja upp hugsanatálma til að hindra að óeðlisórar hverskonar spretti í framhaldinu fram og grasseri um borg og bý og nái að skjóta rótum í viðkvæmum kollum.
Flott framtak hjá konunum! Úps, núna fékk ég prik ef ekki tvö í syndakladdann minn.
Koma naktar fram á dagatali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Allt er stærst í henni Ameríku
19.4.2011 | 21:17
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ef marka má...
23.10.2010 | 18:38
...myndina, væri nær að tala um þriðja sætið í afskræmingu og afmyndun.
Í 3. sæti á NM í hreysti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verður jólunum flýtt í ár?
4.10.2010 | 11:02
Skoðanakönnun hefur verið uppi í nokkra daga hér á síðunni, spurt var:
Eftir ólíkindaatburði síðustu daga liggur beinast við að spyrja Hvað gerist næst?
Þátttaka var 80 manns. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Stjórnin springur 41 % Það verður bylting 24 % Jólunum verður flýtt um 2 mánuði 35 %
Fæstir veðja á byltingu, flestir telja líklegast að stjórnin springi en merkilega margir eru á því að jólunum verði flýtt. Líklegt er að það verði gert með stuttum fyrirvara til að hamla gegn hefðbundnu kaupæði og bruðli, sem einkennir jólahald landans og það stúss allt.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er tungunni tamast, sem hjartanu er kærast.
26.9.2010 | 17:49
Vonandi vefst henni ekki svona tunga um tönn í æstum munnmökum, konu kindinni.
Ruglaði saman verðbólgu og munnmökum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Verður hún dæmd á bakið fyrir lífstíð?
25.9.2010 | 15:39
Það er deginum ljósara, ef ýtrustu kröfur boltaguttans ná fram að ganga, þá mun það, í bókstaflegri merkingu, leggja aumingja konuna í rúmið fyrir lífstíð.
Beckham tæklar vændiskonu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Allt er þá þrennt er
6.9.2010 | 22:33
Af hverju kemur það á óvart og veldur hneykslan að þeir þurfi að borga sig inn á þá leiki sem þeir vilja helst stunda utan vallar?
En rétt eins og í fótboltanum hlýtur þessi gleðikona að teljast frekar slöpp hafi hún aðeins skorðað þrisvar á öllum ferlinum, nema það hafi gerst í eina og sama leiknum.
Ástkona Rooney með þrennu? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þetta fer óðum batnandi.
22.8.2010 | 20:55
Það útilokað að hafa nokkra samúð með nautabönunum sem falla um þessar mundir hver af öðrum fyrir hornum fórnarnauta sinna. Það eina sorglega væri ef þeir næðu sér nægjanlega til að taka aftur upp fyrri iðju.
Meðfylgjandi myndband er ekki fyrir viðkvæma. Nautið bjargaði ekki lífi sínu með sigri sínum, það var fyrirfram dæmt til dauða, hvernig sem allt veltist. En nautið náði jafntefli.
Enn einn nautabaninn slasast í ati | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)