Leiðin til himna

Er ekki rétt að tileinka Degi og öðrum sem klífa metorðastigana í prófkjörum þessa dagana lagið Stairway to Heaven með Led Zeppelin

 

En því miður liggur það ekki fyrir öllum að fara upp stigann.


mbl.is Átta atkvæði milli Bjarna og Dofra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Dagur hefur svo sterkann leiðtogakarakter, án þess að vera með einræðisgenin eins og svo margir. Hann vill skoða málin vel og finna bestu lausnirnar hverju sinni. Hann hefur líka gott lag á að fá fólk til að hlusta á sín sjónarmið og fá fólk á sitt band með rökum.

Öskrin af Svörtu loftum eru ekki notuð á þeim bæ. Ég sé hann fyrir mér sem framtíðarleiðtoga jafnaðarmanna á Íslandi.

Það er engin tilviljun að hann sé kominn þangað sem hann er, við jafnaðarmenn viljum hafa okkar leiðtoga með þessu móti.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 31.1.2010 kl. 17:30

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er öruglega rétt hjá þér Hólmfríður að Dagur sé framtíðarforingjaefni ef honum þrýtur ekki örendið. Ég tel ljóst að óvænt innkoma Jóhönnu hafi valdið því að hann lét ekki til skarar skríða á síðasta landsfundi Samfylkingarinnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.1.2010 kl. 18:22

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þegar Dagur byrjar að tala þá hætti ég alltaf að heyra, hann er yfirleitt með innihaldslaust tal og segir aldrei neitt, typiskur stjórnmálamaður. Virkar illa á mig og gæti ekki hugsað mér að fylgja honum, fyrir mér er hann með sömu genin og Björgvin G.Sig.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.2.2010 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.