Jafnrétti á villigötum!

Samkvæmt lögunum þarf stjórn sem skipuð er 3 eða fleirum að innihalda  að minnsta kosti 40% af hvoru kyni. Getur einhver sagt mér hvernig þetta verður framkvæmt?

Þriggja manna stjórn getur aðeins haft, að mínu viti, eina konu og tvo karla eða öfugt.   Segjum ein kona og tveir karlar, þá er konan 33,33% af stjórninni og karlarnir 66.66%, öldungis ófullnægjandi  segja lögin!

Hvaða líkamsparta er best að karlarnir láni konunni á fundum svo hún nái 40% markinu?   

Erum við ekki komin örlítið út af sporinu. Er þetta til hagsbóta fyrir konur?

Hvað kemur næst í þessu bulli?  

Biðraðir, þarf að kynjajafna í þeim ef þær raðast ekki „rétt“?

Saumaklúbbar, verða konur að skikka karlana með sér svo ekki verði kynjahalli á klúbbunum?

Hvað með hjón sem eiga t.d. 4 stráka, þurfa þau að ættleiða stúlkur inn í röðina til að jafna hlutföllin?

Hvað með aðgreiningu kynjanna á salernum, er ekki hrópandi mismunun þar?


mbl.is Kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Nákvæmlega..Og að þetta skuli vera það sem er flutt á Alþingi þegar þjóðin er í rusli. Þetta er veruleikafirrt fólk :(

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 4.3.2010 kl. 16:17

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þarftu nú að vera að flækja þetta Axel :)

Finnur Bárðarson, 4.3.2010 kl. 16:21

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er stórundarlegt Silla.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.3.2010 kl. 16:27

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er alger óþarfi að hafa hlutina einfalda Finnur, ef annað er í boði.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.3.2010 kl. 16:28

5 Smámynd: Ingvi Rúnar Einarsson

Enn eitt ruglið,sem kemur úr sölum Alþingi Íslendinga.

Ég hef rætt við margar konur um þetta misvægi,sem er í stjórnun fyrirtækja eða ýmsum störfum og starfsgreinum.Allar hafa þær talið,að misvægið væri vegna óhugaleysi kvennanna sjálfa.Ef áhugi og geta er til staðar er þeim allir vegir færir.

Þær telja að sá einstaklingur,sem er mest hæfur skuli ganga fyrir,í það og það sinni.Allar upphrópannir um misvægi, er tilhafðar af ákveðnum hópi kvenna.

Ingvi Rúnar Einarsson, 4.3.2010 kl. 17:41

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ingvi, þegar hugtakið jákvæð mismunun var fundið upp var ljóst á hvaða villigötur var verið að beina umræðunni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.3.2010 kl. 17:48

7 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Þeir leysa þetta með því að binda í lög að stjórnir skuli hafa að minsta kosti 5 manns.

Hvað með sturtuklefana í sundlaugunum?

Hvað með Frímúrara og lions?

Hvað með skákmót, þar er mikill meirihluti karlar.

Sveinn Elías Hansson, 4.3.2010 kl. 18:00

8 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Ekki það að ég styðji svona rugl lög þá er samt vert að taka fram eftirfarandi.

Samkvæmt frétt:

Alþingi samþykkti í dag lög sem gera meðal annars ráð fyrir því, að í stjórnum opinberra hlutafélaga og einkahlutafélaga með fleiri en þrjá stjórnarmenn skuli hlutfall hvors kyns í stjórninni vera að minnsta kosti 40% í lok árs 2013.

Þetta sleppur þar sem það þurfa að vera lágmark 4 í stjórn til að þessi lög nái til þeirra félaga, einnig er verið að skikka opinber félög, þ.e. ríkisgeirinn.

Að mínu mati er þetta ekkert annað en öfug jafnréttindabarátta þar sem þetta hentar illa fyrir bæði kyn þar sem hæfum einstaklingum verður hugsanlega hafna til að uppfylla kynjakvóta, ég sé ekkert jafnrétti við það.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 4.3.2010 kl. 19:40

9 Smámynd: Brattur

Þessi lög eru eingöngu sett fyrir karla til að tryggja sér möguleika á því að vera í stjórnum í framtíðinni... klókt ekki satt ?

Brattur, 4.3.2010 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.