Frelsishetjur eða Quislingar?

Þungamiðjan í þessari frétt er sú staðreynd, sem ljós hefur verið lengi en ekki farið hátt, að sumir Íslendingar hafa lagt meira upp úr þjónkun og þjónustu við Bandaríkin en hollustu við fósturjörðina.

Ekki hafa þessir menn þó verið kallaðir Quislingar eða landráðamenn eins og er í tísku þessa daganna hjá vissum hópi manna þegar þeir ræða um núverandi stjórnvöld landsins.

 

mbl.is DV: Leyniskýrslur sendiráðs Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli það sama verði þá ekki sagt um þau Jóhönnu og Össur varðandi þjónkun þeirra við ESB á kostnaða þjóðarinnar, þar sem hagsmunir Íslands vega minna en hagsmunir ESB og Brussel-ráðamanna. 

Ætli sagan muni þá ekki segja að þau Jóhann og Össur séu Quislingar vegna þjónkunar þeirra við ESB.

Gísli J. Arnarson (IP-tala skráð) 29.3.2010 kl. 09:13

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er undarleg samlíking hjá þér Gísli. Spurningunni hvort við göngum í Evrópusambandið verður svarað af allri þjóðinni. Þar verður um opinberan milliríkjasamning að ræða og er ekki þjónkun við ESB bak við tjöldin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.3.2010 kl. 09:23

3 identicon

Skiptir engu hvort að kosið verður um ESB eða ekki. 

Allt það sem er í gangi í sjálfu umsóknarferlinu og það sem mun gerast eftir að, eða öllu heldur ef við göngum í ESB, allt leynimakkið fyrir og eftir aðildarumsókn, er og verður þjónkun á bak við tjöldin.

Ég gæti best trúað því að bæði Jóhanna og Össur gera allt til að þjónkast ESB-ráðamönnum, og þar skipta hagsmunir þjóðarinnar engu.  Markmiðið er jú að komast í "sæluna" í ESB, sama hvort að það séu hagsmunir þjóðirnnar eða ekki.  Þetta er einfaldalega mission (impossible) hjá Samfylkingunni.

Og svo skal á það bent, að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB verður ekki bindandi fyrir stjórnvöld, heldur ráðgefandi, svo stjórnvöld (lesist Samfylkingin) getur farið sínu fram gegn vilja þjóðarinnar.

Gísli J. Arnarson (IP-tala skráð) 29.3.2010 kl. 12:53

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú ert aldeilis með þetta á hreinu Gísli, ekki ónýtt það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.3.2010 kl. 12:56

5 identicon

Þegar komið er að okkur að "fá" inngöngu í ESB bandalagið,  þá verður það þegar uppleyst.

j.a (IP-tala skráð) 29.3.2010 kl. 13:37

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Evrópusambandið, Evrópusambandið, Evrópusambandið, þó ekki hafi verið á það minnst í færslunni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.3.2010 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband