Eldflaugar?

rocket_tÉg sé ekki betur en þarna séu notaðir venjulegir „áramóta“ flugeldar að uppbyggingu og fáránlegt af blaðamanni að þýða þetta beint upp úr fréttinni og kalla þetta eldflaugar, sem eru auðvitað allt annar hlutur.

 En þessi hefð á eynni Chios er engu að síður snargalin.

.

.

 
mbl.is Eldflaugastríð á Grikklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Prófa hana hér um áramótin. Garðabær getur skotið á Kópavog og svo framvegis. Ekki verra ef að kviknar í nokkrum húsum, þá verður alvöru stríðsástand. Það er það eina sem vantar hér.

Hamarinn, 4.4.2010 kl. 16:56

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Íslendingar eru greinilega ekki búnir að uppgötva þessa göfugu íþrótt, myndi annars hæfa þeim vel.

Finnur Bárðarson, 4.4.2010 kl. 17:46

3 identicon

Heldur þú að þetta séu ekki bara venjulegir ''Páskaflugeldar '' sem eru notaðir þarna eða myndir þu ef þú myndir búa í Bandaríkjunum kalla þetta ''venjulega 4th July fluelda''.

Afhverju þarf alltaf að klína Íslensku nafni á allt ? Hvenær munum við Íslendingar komast að þeirri niðurstöðu að Ísland er EKKI nafli alheimsins

Gleðilega Páska

Loki (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 17:57

4 Smámynd: Hamarinn

Eru þetta ekki bara Flugeldar?

Hamarinn, 4.4.2010 kl. 18:14

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ísland er ekki nafli alheimsins, Loki, það er rétt. 

Afhverju að klína íslensku nafni á allt? Tjah, gæti það mögulega haft eitthvað með það að gera að við búum á Íslandi, og það sé lágmark að tala íslensku og nota rétt málfar?

Og í þessu samhengi telst það ekki rétt málfar að segjast skjóta upp "eldflaugum", þar sem að eldflaugar eru eitthvað allt annað samkvæmt okkar tungu. Og réttilega bendir blogghöfundur á það.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 4.4.2010 kl. 19:01

6 identicon

Sammála Hamrinum  þetta eru bara flugeldar en kannski kallaðir Páskaflugeldar þarna alveg eins og Íslendingar kalla flugelda notaða um áramot ÁRAMÓTA flugelda og svo framvegis eða heldur þú Ingibjörg að það sé skotið upp áramótaflugeldum um verslunarmannahelgar í Vestmannaeyjum.

Ég er alveg sammála höfundi að þetta er ekki eldflaugar var bara með smá striðni í hvernig það þarf að Íslenska allt 

Loki (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 20:41

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ísland er miðdepill heimsins. Hef ekki verri heimildramann en Jón Val Jensson

Finnur Bárðarson, 4.4.2010 kl. 21:16

8 identicon

Það er erfitt að mótmæla svo traustum heimildamanni Finnur .

Loki (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 21:21

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Legg til að flugeldum verði um næstu áramót skotið lárétt en ekki lóðrétt. Gott getur verið að nota tækifærið til að jafna óuppgerðar misgjörðir nágrannans.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.4.2010 kl. 22:21

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hamar og Loki, ég kem inn á það í færslunni að þetta séu flugeldar en ekki eldflaugar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.4.2010 kl. 22:22

11 Smámynd: Hamarinn

Það á að sjálfsögðu að nota svona skotbúnað um áramótin, eins og þetta fólk notar, þá fyrst verður fjör.

Hamarinn, 4.4.2010 kl. 22:30

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Finnur, sé það frá JVJ komið, þarf ekki frekari vitnanna við. Ég geri mig ekki það breiðann að andmæla almættinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.4.2010 kl. 22:44

13 identicon

Axel Þetta var svona til að koma af stað umræðu,þú kallaðir þetta fluelda það er rétt.

Einu sinni  þegar ég var unglingur þá gerðum við vinirnir akkúrat það, við klifruðum uppá verslunarhúsnæði með svona litið hallandi þaki,og þar settum við flugeldani á bárujárnið og skutum þeim þvert yfir götuna að gömlu fjölbílishúsi og sem betur fer hittum við aldrei gluggana, og seinna þann dag vorum við farnir að nota rafmagnsror úr járni til að skjóta þeim frá mjöðm, svona var maður nú heimskur á þeim árum en sem betur fer vannst engin slys af þessu athæfi.

Loki (IP-tala skráð) 5.4.2010 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband