Rúsínan í pylsuendanum

Það má auðvitað deila um, hvort æskilegt sé að frambjóðendur troði upp með pylsur og gos handa kjósendum og börnum og hvar þeir gera það.

Það má líka deila um hvort það sé barnalegt eða ekki að stökkva upp á nef sér yfir þannig uppákomum.

Að mínu mati eru hvorki pylsurnar eða mótmælin þungamiðjan í þessari frétt. Rúsínan í pylsuendanum er tvímælalaust innlegg Morgunblaðsins þegar blaðið gerir það að aðalatriði,  hver mótmælti.

Þess má geta að sundlaugargesturinn er bróðir Oddnýjar Sturludóttur frambjóðanda Samfylkingarinnar í Reykjavík.  

mbl.is Kvartar undan kosningaáróðri í sundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Já, mér þótti undarlegt að þar sem hann er bróðir hennar þá þurfi hann endilega að deila sömu pólitísku skoðunum og hún.

Stjórnmál eru greinilega sjúkdómur sem gengur í ættir.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 2.5.2010 kl. 19:06

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sumir flokkar ganga út frá því með vissu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.5.2010 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.