Ekki skíta þar sem þið borðið.

Ásakanir hvalaskoðunarfyrirtækja að hrefnuveiðibátar stundi veiðar á afmörkuðu hvalaskoðunarsvæði eru eðli máls samkvæmt afar ómerkilegar og sannarlega „neðan beltis“.

Hrefnuveiðibátarnir þurfa auðvitað að komast úr og í höfn og sigla yfir friðuðu svæðin. Allir vita að hvalveiðar standa „tilfinningalega“  tæpt  og lítið þarf út af að bregða til að þær verði slegnar af, það vita þeir manna best sem veiðarnar stunda.

Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að hvalveiðimenn stefna ekki atvinnu sinni og fjárhagslegri afkomu í tvísýnu með því að brjóta skilyrði veiðanna eða storka hvalaskoðunarfyrirtækjunum og yfirvöldum sér til gamans.

Hvalveiðimenn vita, ólíkt hvalaskoðunarmönnum, að engum er hollt að skíta þar sem þeir borða.

  


mbl.is Voru ekki við veiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sæll Axel, ég er sammála þér og var einmitt að furða mig á þessari ásökun. Það hvarflaði að mér hvort "skoðunarmenn" þekktu ekki hvernig veiðimenn bera sig að við veiðar?

Kolbrún Hilmars, 19.5.2010 kl. 16:47

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Kolbrún og undirtektir. Ég er viss um að hvalaskoðunarmenn vita vel hvernig staðið er að veiðunum, þó þeir kjósi að haga málflutningi sínum með þessum hætti.

Skoðun og veiðar eru vel samrýmanlegar atvinnugreinar ef rétt er að staðið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.5.2010 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.