Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Vammlausir vafningar?
7.6.2010 | 13:18
Er Sigurður Kári að tala um spillingu? Var það ekki hún sem skilaði honum inn á þing þegar Illugi Gunnarsson hrökklaðist í frí?
Síendurtekinn flutningur á þessari þvælu hefur aðeins einn tilgang, tilgang smjörklípunnar, að breiða yfir vandræðagang Sjálfstæðisflokksins og spillinguna sem teygir sig út í öll horn flokksins.
Bjarna Ben formann Sjálfstæðisflokksins skortir styrk til að taka á spillingarmálinum flokksins og veit það og sjálfur er hann tryggilega vafinn í vafasöm mál. Það er því gripið til lyginnar og hún endurtekin þar til hún verður að sannleik að hætti Göbbels.
Bjarni hefur, að eigin sögn, ekki lagt að Guðlaugi Þór að segja af sér og ætlar ekki að gera það, með þeim rökum að Guðlaugur sæki ekki umboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Svo hefur þessi vammlausi vafningur og anguraparnir kringum hann krafist þess að ríkisstjórnin segi af sér.
Af hverju ætti ríkisstjórnin að segja af sér? Hún sækir ekki umboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Samsæri um að hækka laun Más | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:53 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 1027595
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Athugasemdir
Þessir spillingar apar eiga bágt. Hver framkvæmdi samsæri þegar Davíð hækkaði sín laun ? Skoðið lista Hollvinafélags Lagadeildar HÍ, setjið svo samanlista yfir stjórnmáladólga og alþingismenn, svo að siðust að lesa siðareglur Lögmannafélags Íslands. Margir fá hroll !
Birgir Rúnar Sæmundsson, 7.6.2010 kl. 13:26
Takk fyrir þessa ábendingu Birgir.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.6.2010 kl. 13:28
Þetta er auðvitað alveg óskiljanlegt drullu-sokka-lið sem ekki hefur áhuga á öðru en að stela meiru frá almenningi, eins og þessi ungi drengur sem hefur látið draga sig á asnaeyrunum og með dollara á önglinum inn í þessa spillingarhít?
Svona vitleysu verður að linna! M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.6.2010 kl. 13:33
Er þetta taktíkin? Í stað þess að viðurkenna að hér sé eitthvað gruggugt þá er bara bent á að íhaldið hafi sko líka verið spillt.
Hvernig væri að drullast bara upp úr flokkaskítnum og viðurkenna að hér sé verið að fara framhjá reglum.
Snæþór Sigurbjörn Halldórsson, 7.6.2010 kl. 13:33
Þeir eiga í alvarlegri tilvistarkreppu Anna.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.6.2010 kl. 13:36
Það er ekki verið að halda því fram Snæþór að íhaldið sé líka spillt.
Það er spillt!
Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.6.2010 kl. 13:39
Axel. Ég er ein af þeim sem kaus þessa stjórn..kannski ætti ég að segja yfir mig. Ég er frekar óánægð með hana vægt til orða tekið. Það sem er einmitt hvimleiðast er þetta.. Að næstum hvert svar sem Jóhanna og Steigrímur gefa um mál sem hægt er að tengja spillingu og bankahruni endar á setningum eins og þessi..Skoðið íhaldið, skoðið framsókn. Svona ekki-benda-á-mig..Spillingin hefur grasserað, við vitum það, í öllum eða flestum flokkum. En nú á það að taka enda eða er það ekki?
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.6.2010 kl. 14:15
Silla, ég hef líka gagnrýnt þessa tregðu stjórnmálamanna til að sjá bjálkana í eigin auga. Þar er enginn flokkur undan skilinn. Tilkoma Besta flokksins og magnaður árangur hans virðist ekki hafa nægt til að draga huluna frá augum þeirra.
Auðvitað eru allir hundóánægðir með verk stjórnarinnar annað væri skrítið, engin stjórn hefur fengið annað eins í fangið frá upphafi og haft verri og þrengri stöðu.
Helsti vandi stjórnarinnar er þessi stöðuga óvissa hvort hún hafi nægan þingstyrk frá máli til máls, af ástæðum sem óþarfi er að rekja.
Það er létt verk og löðurmannlegt við núverandi aðstæður að vera í "stjórnarandstöðu", öll gagnrýni hversu ósanngjörn sem hún er, hljómar vel í eyrum þreyttra landsmanna.
Ég er sammála því að "allt uppi á borðinu" hefur ekki verið að skila sér samkvæmt væntingum.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.6.2010 kl. 14:41
P.S. Ertu sátt við kosningaúrslitin hjá ykkur þarna á nesinu norður?
Hér fengu S og D þá ráðningu sem þeir áttu skilið. B ákvað hins vegar að hundsa annan sigurvegara kosninganna ,G listann, og leiða í staðin D til valda þrátt fyrir höfnun kjósenda.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.6.2010 kl. 14:45
Mér skilst að eina sveitarfélagið þar sem S-listi er með hreinan meirihluta sé hér í Sandgerði.. Reyndar fóru saman K-listi (minn gamli) óháðra og samfylking..Þau öfl höfðu saman 4 menn áður:) Ég sé reyndar mikið eftir bæjarstjóranum sem ég vann með í 12 ár. En það geta ekki allir unnið. Ég hefði viljað fá að raða 1-2 af hverjum lista saman í einn:)))Kannski verður það einhverntíman gert!
Kveðja úr Stafneshverfinu.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.6.2010 kl. 15:06
Enginn er fullkominn, nema ég.
Davíð Oddsson (IP-tala skráð) 7.6.2010 kl. 16:52
Megir þú þess njóta, vel og lengi "Davíð".
Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.6.2010 kl. 18:19
Helv... góður punktur...
"Ríkisstjórnin sækir ekki umboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins"
Brattur, 7.6.2010 kl. 19:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.