Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bæði augun blind.
29.6.2010 | 12:06
Þessi lógík hjá ungum sjálfstæðismönnum er álíka og segja að bílslys sé ekki þeim að kenna, sem aftengdi bæði bremsur og stýri bílsins.
Þetta sýnir og sannar svo ekki verður um villst að ungir sjálftökumenn ætla ekki að draga lærdóm af slysinu og ætla engu að breyta.
Bremsur og stýri verða aftur aftengd um leið og þeir fá til þess vald.
SUS: Ekki frjálshyggjunni að kenna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 1027596
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Kynntu þér hugmyndafræði frjálshyggjunnar félagi. Það var engin frjálshyggja hér í gangi heldur dæmigert kratískt blandað hagkerfi.
Hjörtur J. Guðmundsson, 29.6.2010 kl. 12:12
Með ólíkindum hversu illa fólk er að sér í mismunandi hugmyndafræðum, frjálshyggja á Íslandi????, hahaha hvar?
Sigurður Karl Lúðvíksson, 29.6.2010 kl. 12:19
Er það ekki frjálshyggjan Hjörtur, sem stendur þversum upp í rassgatinu á þjóðinni?
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 12:20
það er hægt að stilla þessu upp á marga vegu en þetta er orðið hálfgert rugl þegar þjófurinn skilur reikninginn eftir hjá almenningi og fær þar að auki baktryggingu hjá Seðlabanka og ríkisstjórn! Menn benda á krónuna, frjálshyggjuna og alla skapaða hluti nema þjófinn sjálfan, það er eftir öðru
magnús (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 12:22
á Íslandi hefur aldrei verið til neitt sem kallast frjálshyggja. það hefur aldrei verið meirihluti á þingi og ekki einu sinni meirihluti í einum þingflokki fyrir að koma á einhverskonar frjálshyggju á Íslandi.
það eina sem feldi landið er sami gamli skíta sósíalismin og ríkisábyrgðin og hefur alltaf verið við lýði í þessu landi. sami skíta sósíalismin og pilsfaldar kapítalisminn sem þú og fleiri haldið að sé nýt net í dag.
Fannar frá Rifi, 29.6.2010 kl. 12:23
Hvað heitir hann nú aftur Sigurður, aðalhugmyndafræðingurinn ykkar Dabbista? Ha....lld.....já alveg rétt Hannes Hólmsteinn, helvítis komminn sá.
http://www.youtube.com/watch?v=BenOcedckl4
http://www.youtube.com/watch?v=jYT5Ef0Xnjk
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 12:31
Sjálfstæðisflokkurinn er á sömu leið og Pétur postuli um árið... afneitar meistara sínum og leiðtoga., frjálshyggjunni.
Jón Ingi Cæsarsson, 29.6.2010 kl. 12:42
Já Jón, þetta er bara fyndið.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 12:46
Jón Ingi og Axel Jóhann, þið ættuð að kynna ykkur betur hugmyndafræði frjálshyggjunnar eins og Hjörtur bendir á. Þið vitið greinilega ekki hvað frjálshyggja er, það er jafnlítið af frjálshyggju á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum (Sósíalistalöndunum).
Gunnsteinn (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 12:52
Passaðu þig að detta ekki í skítinn Fannar, það væri illt fengir þú sósíalistakúk í augun, það gæti byrgt þér sýn.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 12:52
Guðsteinn, hefur þú borið þetta undir Hannes?
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 12:54
Í rauninni er þetta rétt hjá Hirti, reyndar eru flestir stjórnmálaflokkar á Íslandi frjálshyggjuflokkar ef þeir eru bornir saman við alþjóðlegar skilgreiningar, líka VG. Aftur á móti var svo kölluð nýfrjálshyggja í gangni hérna í boði sjálfstæðisflokksins. Bandaríkjamenn hafa til dæmis verið mjög hrifnir af nýfrjálshyggju.
Smá um nýfrjálshyggju eða neo-liberalism http://en.wikipedia.org/wiki/Neoliberalism
Bjöggi (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 12:55
Gunnsteinn ætti líka að skoða munin á frjálshyggju og nýfrjálshyggju
Bjöggi (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 12:55
Í kaflanum um nýfrjálshyggju á wikipedia er nýfrjálshyggju beinlínis kennt um fallið
"Iceland began implementing neoliberal economic policies beginning in the late 1980s. As measured by the Economic Freedom of the World, it had the 53rd "freest economy" in 1975 and it was one of the poorest countries in Europe. In 2004, it had the 9th freest economy and it was one of the richest.[56] However, by 2009, the country was bankrupt, a consequence that a number of observers have attributed directly to Iceland's adoption of neoliberal economic policies.[57][58][59][60] [61]"
Bjöggi (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 12:57
kennt um fallið á Íslandi
Bjöggi (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 12:58
Var að skoða þetta frá SUS, get ekki betur séð en að þeir eru ekkert sértsaklega vel að sér þegar kemur að þessum málum. Þeir segja meðal annars
"Ungir sjálfstæðismenn hafna öllum fullyrðingum um að hér á landi hafi frjálshyggjan kollvarpað kerfinu, eins og andstæðingar frelsisins vilja svo oft að orði komast. Vart þarf að taka fram að allt tal um nýfrjálshyggju er marklaust enda ekkert til sem heitir nýfrjálshyggja"
Núnú, nýfrjálshyggjan ekki til hjá þeim, hún er til í öðrum löndum og er umfjöllunarefni innan háskóla, afhverju tala þeir um að hún sé ekki til.
Bjöggi (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 13:04
Takk fyrir innleggin Bjöggi.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 13:06
Góð samlíking þetta með bremsurnar og stýrið. Enda uppskerðu sár viðbrögð. Sem eru fyndin en um leið brjóstumkennanleg.
valdimar (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 13:50
Takk fyrir þitt innlegg Valdimar.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 14:04
Mér sýnist að margir eru að afneita gyllta skurðgoðinu sem þeir tilbáðu af sjúklegri ástríðu um áraraðir. Hvað kemur til ?
Finnur Bárðarson, 29.6.2010 kl. 14:11
Núverandi stjórnvöld fylgja þeirri stefnu að kerfið sé í fínasta lagi eins og það er, og í grundvallaratriðum eigi að varðveita það, nema með ögn meira eftirliti og ögn fleiri reglum til viðbótar viðeftirfarandi reglusafn sem var í gildi við hrunið:
http://www.andriki.is/vt/myndir09/her_voru_engar_reglur05022009.pdf
Geir Ágústsson, 29.6.2010 kl. 14:43
Sjallar hömpuðu sér í kjöltu frjálshyggjunnar öll þau ár sem þeir voru við stjórnvölinn á Alþingi. En um leið og þeir missa völdin og allt fer til fjandans, þá er það fyrsta sem þeir afneita, brjóstið sem þeir hafa tottað öll þessi ár.
Nei, það er rétt hjá ykkur. Það ríkir engin frjálshyggja hér. Í það minnsta ekki lengur.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 29.6.2010 kl. 15:02
Ingibjörg,
Nákvæmlega sama kerfi er við líði nú og þá og engar áætlanir um að breyta því. Ennþá á að starfrækja seðlabanka sem einokar peningaútgáfu á Íslandi. Ennþá á að ákveða verð á fjármagni (vexti) miðlægt og af litlum hópi "sérfræðinga".
Geir Ágústsson, 29.6.2010 kl. 15:11
Liberalism er ekki frjálshyggja. Liberalism er jafnaðarstefna ef ég man rétt. Frjálshyggja nefnist á ensku Libertariansm.
http://is.wikipedia.org/wiki/Frj%C3%A1lshyggja#Frj.C3.A1lshyggja_samt.C3.ADmans
"...en ýmsir aðrir, aðallega andstæðingar frjálshyggju, kalla þá nýfrjálshyggjumenn, „neo-liberals.“"
Þannig tæknilega séð er "neo-liberalism" nýjafnaðarstefna. En náttúrulega er ekki hægt að kenna henni um, er það nokkuð? (kaldhæðni endar)
Indriði Einar Reynisson (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 15:33
Það er svo að skilja Finnur að Frjálshyggjusöfnuðurinn þekki ekki sinn eigin átrúnað nema af afspurn.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 16:47
Það er illa komið þegar menn afneita Guði sínum, bein braut til vítis.
Finnur Bárðarson, 29.6.2010 kl. 16:51
Batnandi mönnum er best að lifa Finnur.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 17:41
Ég held Indriði að guðfaðir frjálshyggjunnar á Íslandi verði ekki ýkja hrifinn verði honum borin jafnaðarstefna á brýn.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.6.2010 kl. 17:48
Geir;
Það blasir við, að þú þekkir ekki kaldhæðni þegar þú sérð hana.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 29.6.2010 kl. 20:28
Indriði Einar, Liberalism þýðir frjálslyndi. Þá stefnu aðhyllast þeir sem vilja sem mest frelsi í viðskiptum. Andstæðan við frjálslyndi er stjórnlyndi(statism), það eru þeir sem vilja opinber afskipti og takmörkun á frjálsum viðskiptum.
Lúðvík Júlíusson, 30.6.2010 kl. 01:30
Takk fyrir þitt innlegg Lúðvík.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.6.2010 kl. 01:52
Thad var ekki frjálshyggja.....thad vaer hreinraektadur fasismi. Stjórnvöld voru samdauna glaepafyrirtaekjum og rústudu í sameiningu efnahag og sidferdi thjódarinnar.
Hvílíkur vidbjódur hefur ekki sést lengi nema náttúrulega hjá glaepa og mordingjaríkinu Ísrael sem er náttúrulega verra ad thví leiti ad thad drepur fólk fyrir opnum tjöldum.
Thad er stórfurdulegt af hverju their sem stjórnudu eru ekki allir í fangelsi. Nei....íslendingar láta allt yfir sig ganga.
Hvad lömbin í Sjálfstaedisflokknum segja á náttúrulega enginn ad taka mark á. Thetta eru börn án lífsreynslu.
Hjörtur (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 13:41
Þegar fjálshyggjudrýsillinn hélt að "íslenska undrið" væri að virka fór hann mikinn í lofsöng um að frjálshyggjunni væri allt að þakka. Glæpamennirnir væru að græða á daginn og grilla (Íslendinga) á kvöldin. Allt samkvæmt uppskrift frjálshyggjunnar. "Hugsið ykkur hvað væri gaman ef við gæfum í," sagði hann sigri hrósandi þegar bankaræningjarnir höfðu þanið hagkerfi sitt upp fyrir margföld fjárlög íslenska ríkisins.
Þegar keisari frjálshyggjunnar var afhjúpaður í engum fötum skríða attaníossar drýsilsins upp úr kjallara hans og afneita staðreyndum. Hver á fætur öðrum. Þeir eru hvort sem er vanir að snúa raunveruleikanum á hvolf. Kunna ekkert annað. Ekkert annað.
Jens Guð, 1.7.2010 kl. 00:23
Takk fyrir innleggið Jens, þeir keppast við kapparnir að sverja af sér frjálshyggjukróann.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.7.2010 kl. 07:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.