Kónguló, kónguló vísaðu mér....

Það berast af því fregnir að fólk sé að fá meindýraeyða til að eyða kóngulóm úr görðum sínum og af húsum.

krosskóngulóÞetta finnst mér mjög misráðið. Kóngulær eru ekki skaðlegar heldur þvert á móti mjög gagnlegar. Þær halda t.a.m. flugum í skefjum og hvað mig varðar er þá mikið unnið.

Kóngulærnar eru því vinkonur mínar og á nokkrum gluggum hjá mér hafa komið sér fyrir krosskóngulær sem eru orðnar feitar og pattaralegar eftir veislu sumarsins. Eftir að þær hafa komið sér fyrir á sumrin heyrir það til undantekninga að fluga sjáist í húsinu.  

Komi þessar elskur inn til mín sem gerist afar sjaldan, þá fer ég um þær mjúkum höndum og kem þeim út aftur þar sem þær halda áfram að vinna mér gagn.  

 


mbl.is Köngulóarmaðurinn fer á stjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Köngulær eru mjög nytsamar og áhugaverðar...

Ég drep ekkert ef ég kemst hjá því, búinn að vera duglegur að bjarga býflugum og geitungum sem villast inn hjá mér.

Það er slatti af kóngulóm á svölunum hjá mér... 

DoctorE (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 12:48

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég get nú ekki sagt DoctorE að ég vildi hafa geitungabú í garðinum. Hunangsflugur er flottar, en þessar venjulegu húsflugur og fiskiflugur þoli ég ekki.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.7.2010 kl. 12:54

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ég hef aðeins drepið eitt kvikindi sem komst inn til mín. En það var stærðarinnar geitungur (geitfugl) sem villtist inn í svefnherbergið snemma um morguninn. Leist ekkert á blikuna og steikti hann með rafmögnuðum flugna spaða, og var hann svo stór að það þurfti nokkrar umferðir af honum.

Hvað köngulærnar varðar, leyfi ég þeim að vera algerlega í friði hérna úti þótt mér sé meinilla við þær. Tengdamóðir mín er ekki alveg á sömu bandvídd og ég og hreinsaði þetta allt niður í byrjun sumars.. Enda fylltist allt af flugum hérna samdægurs.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 21.7.2010 kl. 13:01

4 identicon

Öllu má nú ofgera í þessu einsog öðru, þó að manni sé afskaplega vel við kóngurlær þá er óþarfi að búa í vef! ef maður eitrar þá losnar maður líka við flugurnar, mér finnst stundum afsökun þeirra sem nenna ekkert að gera í málunum að friða allt :)

Nína (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 13:39

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ef vefurinn er fyrir þér, þá getur þú tekið hann niður.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 21.7.2010 kl. 13:45

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þær vefa stundum við útidyrnar hjá mér, það er ekkert mál að taka niður vefinn. Eitrun losar þig ekki við flugurnar Nína, þú drepur þær sem verða fyrir eitrinu en svo koma bara aðrar fljúgandi. Biizzziizzzz.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.7.2010 kl. 14:04

7 Smámynd: Guðrún Soffía Gísladóttir

Ég er að vinna í því að losna við kóngulóafóbíuna :). Kannski verða þær  líka vinkonur mínar einn daginn ...

Guðrún Soffía Gísladóttir, 21.7.2010 kl. 14:42

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er vel skiljanlegt Guðrún, að þeir sem eru haldnir svona fóbíu eigi erfitt með að þola kóngulærnar, en flestir eitra og djöflast nánast upp á sportið.

Eitur er með þeim ósköpum að það hverfur ekki þó það drepist sem því var stefnt gegn og við fáum það á endanum í okkur á einn eða annan hátt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.7.2010 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband