Pólskur hundagöngumaður!

 

Hér taka málfarssnillingarnir og nýyrðasmiðirnir á mbl.is langt fram úr sjálfum sér.

 
"Lögreglan var kölluð á vettvang eftir að pólskur hundagöngumaður fann konurnar í annarlegu ástandi í miðjum almenningsgarði".

Ég er samkvæmt þessu íslenskur hundagöngumaður eða hann Bangsi minn íslenskur manngönguhundur.

 
mbl.is Mæðgur á sjúkrahúsi eftir hnífabardaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Sigurðsson

Pólskur hundagöngumaður -> maður, pólskur að þjóðerni sem hefur það að atvinnu að fara með annarra manna hunda út að ganga.

Vinkona mín sem býr í bretlandi er íslensk hundagöngukona.

Þór Sigurðsson, 8.8.2010 kl. 11:41

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Skil skíringuna Þór og takk fyrir hana, orðið er eftir sem áður bull.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.8.2010 kl. 11:42

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Er þetta starfsheitið hennar?

"Hver ert þú vinan, og við hvað starfar þú?"

"Ég heiti Jónína, og er íslensk hundagöngukona."

Ef þetta er starfsheiti, þá hlýt ég samkvæmt þeirri skilgreiningu, að vera mjólkurbóndi.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 8.8.2010 kl. 15:46

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já, ertu með kvóta Inga?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.8.2010 kl. 17:23

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Veit ekki hvort ég verði beitt sektum, þetta mjólkurbú hefur verið einkavinavætt.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 8.8.2010 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.