Viljum við að okkur verði stjórnað með ógnunum og hótunum?
12.9.2010 | 17:27
Þetta Moskumál í NY er komið í algera vitleysu. Fyrir það fyrsta hefur bænahús Múslima verið á Ground zero svæðinu síðan 1930 og eitthvað. Þannig að andstaðan við Mosku á svæðinu er eingöngu byggð á misskilningi og fordómum gegn Íslam, sem mönnum hættir til að gera í heild sinni ábyrg fyrir gjörðum fárra öfgamanna og brjálæðinga, sem þeirri trú fylgja.
Eins var með kristna fordóma- og öfgaprestinn sem ætlaði að brenna Kóraninn, eins og það væri einhver lausn á ríkjandi vandamálum eða sáluhjálp fyrir Kristna.
Það gekk maður undir mannshönd að koma í veg fyrir brennuna, ekki af því að mönnum fyndist það beinlínis rangt og ósiðlegt heldur af þeirri ástæðu að menn fengu hland fyrir hjartað af ótta yfir því hvaða afleiðingar brennan hefði á Íslömsk öfgaöfl. Ekki má fyrir nokkurn mun styggja þá.
Núna er klerkurinn sem vill byggja Moskuna við Ground zero komin á þessa sömu línu og varar við afleiðingum þess að styggja þá sem ekki má styggja, með því að hindra byggingu Moskunnar. Inn á hvaða braut eru menn komnir og hvaða skilaboð eru menn með þessu að senda öfgafullum brjálæðingum? Er ekki verið að segja pakkinu að með hótunum einum geti þeir stjórnað og ráðskast með almenning á vesturlöndum á þann hátt sem þeim best líkar?
Á Íslandi er uppi veruleg og undarleg andstaða við byggingu Mosku í Reykjavík, byggð á fordómum og vanþekkingu, m.a. virðast margir halda að öll hryðjuverk séu skipulögð í Moskum. Glæpamenn þurfa ekki bænahús til að hittast og skipuleggja glæpi, hvort heldur þeir fylgja Kristi eða Íslam. Auk þess hafa Múslímar á Íslandi sitt bænahús þannig að engin Mosku bygging hindrar ekki að þeir hittist.
Þá vaknar sú spurning, hvort afstaða Íslendinga til fyrirhugaðar Mosku breytist, verði því komið á framfæri að bin Laden karlinn verði verulega ósáttur við þjóðina, verði Moskan ekki reist?
Varasamt að færa moskuna annað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:29 | Facebook
Athugasemdir
Gífurlegur mannfjöldi safnaðist saman í gær á Manhattan til að mótmæla moskunni og smekkleysunni og skorti á nærgætni gagnvart þeim fjölskyldum sem misstu ástvini í árás Araba á Tvíburaturnanna við að byggja 13 hæða mosku við rústirnar. Moskan er þarna sem sigurtákn og ekkert nema ögrun og það sama og að strá salti í sárið.
Sjá um moskur hér :
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 12.9.2010 kl. 21:16
Bölvað bull er þetta Skúli.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 12.9.2010 kl. 21:59
Ingibjörg,
Með allri virðingu fyrir þér. Geturðu ekki verið svolítið nákvæmari?
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 12.9.2010 kl. 22:10
Bull verður aldrei annað bull, að mínu mati, hversu nákvæmlega sem það verður skilgreint.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.9.2010 kl. 23:33
Nákvæmnlega pabbi.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 13.9.2010 kl. 13:12
Drottinn blessi heimilið.
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 13:51
Það smellpassar fyrir þá sem því trúa!
Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2010 kl. 14:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.