Mannfjandsamlegar og dauðans hugmyndir

Þessi fyrirhugaði niðurskurður í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni er stórhættulegur. Þar með verður þegnum landsins illilega, og enn frekar en verið hefur, mismunað eftir búsetu. Það skelfilegasta við þessar hugmyndir er sú hætta,  þó þetta sé hugsað sem tímabundið neyðarúrræði, að þjónustan og störfin gangi aldrei til baka aftur.

Þvert á móti mun verða talið nauðsynlegt að ganga hreint til verks og flytja þjónustuna alfarið á Höfuðbólið vegna þess hve óhagkvæmar litlar einingarnar á landsbyggðinni eru orðnar eftir þessar skerðingarnar og þannig geti þær hvort eð er ekki þjónað íbúunum.

Hver króna sem ríkið sker niður í þjónustu, framkvæmdum og hverju því sem heldur uppi atvinnustiginu, kallar, þegar á næsta ári, á aðra krónu í niðurskurði  vegna samlegðar- og margföldunaráhrifa og óhjákvæmilegs tekjusamdráttar ríkisins því samfara.

Ísland er atvinnulega séð orðið anorexíusjúklingur, frekara svelti, kann að slá á magapínuna tímabundið, en dregur sjúklinginn óhjákvæmilega til dauða.


mbl.is Mun endurmeta tillögurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu með betri hugmyndir?

Hækka skatta? Það fer líka illa með efnahaginn. Í alvöru, hvað annað er hægt að gera? Fólk er voðalega gjarnt á að kvarta undan þessu, sem er vitaskuld skiljanlegt, en það er ekki eins og yfirvöld hafi mikið val hérna.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.10.2010 kl. 16:50

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Þetta er skelfileg staða, svo mikið er víst.

hilmar jónsson, 2.10.2010 kl. 17:12

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er varla gerlegt Helgi, að hækka skattana meira. En það er ekki hægt að ná hverri krónu nema einu sinni út úr hverjum niðurskurði. Auk þess sem skatttekjurnar minnka með þeim hætti. Aukin umsvif, vítamín í atvinnulífið er eina svarið þó það kosti tímabundið aukinn halla á ríkissjóði. Það skilar sér aftur, niðurskurðurinn skilar ekki öðru, til lengri tíma litið, en brattari brekku að klífa.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.10.2010 kl. 17:33

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Því verður ekki á móti mælt, Hilmar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.10.2010 kl. 17:34

5 identicon

Sko, ég er alveg sammála því að það beri að örva atvinnulífið þegar illa ára og hvetja til sparnaðar í góðæri.

En vandinn sem við stöndum frammi fyrir er einfaldlega sá að það er ekki fjármagn til þess að gera það. Venjulega geta yfirvöld fengið pening að láni, en við höfum sem ríki ekki einu sinni nægan aðgang að lánum.

Svona eru alvarlegar kreppur óhjákvæmilega, af þeim ástæðum. Það er ekki eins og að ríkið syndi í lánatilboðum sem það viti ekki hvað það eigi að gera við, heldur þvert á móti. Við berjumst í bakka við að fá nokkurn heilvita mann til að lána okkur.

Það einfaldlega verður að skera niður og hækka skatta. Mér finnst það alveg jafn ömurlegt og hverjum öðrum, en við getum ekkert annað gert. Ég hlusta á allar hugmyndir, en ég hef enn enga fengið sem kostar ekki peninga... peninga sem við höfum ekki aðgang að, hvorki sem eign né sem lán.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.10.2010 kl. 18:28

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég fæ ekki séð að það verði auðveldara að blása í glæðurnar þegar hagkerfið hefur minnkað enn frekar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.10.2010 kl. 19:22

7 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

á meðan verið er svo mikið sem að hugsa um byggingu hátæknisjúkrahúss á Íslandi er fáránlegt að ætla að höggva enn frekar í heilbrigðisþjónustuna! Nýlega var auglýst eftir 600 fm húsnæði á einni hæð til leigu, til undirbúningsvinnu fyrir hátæknisjúkrahús. En á meðan á að skerða þá helsveltu þjónustu sem hangir á horrimini í landi þar sem fólk bíður í ár eftir hjartaþærðingu, þúsundir eiga ekki heimilislækni og starfsfólkið á gólfinu er svo lágt launað að segja má að það vinni samfélagsþjónustustarf og það frítt!

Nei, þetta er ekki hægt að afsaka. Ekki á meðan ég sé EINN ráðherrabíl með bílstjóra aka um götur. Ekki á meðan ég sé EINN alþingismann ferðast á milli landsfjórðunga til að halda ræður við hátíðleg tækifæri og fljúga svo tilbaka samdægurs og það á k0stnað ríkisins.

Sorrý

Ylfa Mist Helgadóttir, 2.10.2010 kl. 19:39

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þakka þér fyrir þetta stórgóða innlegg Ylfa Mist.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.10.2010 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband