Þingmenn eru ekki þjóðin

Það verður spennuþrungið ástandið á Austurvelli í kvöld og hætt við að heitt geti orðið í kolunum og lítið þurfi til að hleypa öllu í bál og brand. Valdsstjórnin hefur talið nauðsynlegt að setja upp girðingu, sér til varnar fyrir skrílnum, sem hefur undarlega lítinn skilning á algerum áhuga- og aðgerðaleysi valdhafana á velferð og hag þegnanna.  

Skuldir auðmanna og sægreifa eru afskrifaðar hægri vinstri. Á sama tíma eru litli Jón og litla Gunna hundelt inn á heimili sín og rekin þaðan út og sett á götuna og gert að greiða afskrifaðar skuldir glæpagreifanna.

Það er sorglegt til þess að hugsa að vinstristjórnin, - Norræna velferðarstjórnin-  skuli ganga þá slóð að vernda auðvaldið og tryggja hreðjatak þess á almenningi, nokkuð sem flestir héldu að helvítis Íhaldið eitt ætti til.

Þingið hefur brugðist þjóðinni gersamlega, Þingið er ekki þjóðin, það er skítapakk!


mbl.is Bumbur barðar á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Heyr heyr!

Haraldur Davíðsson, 4.10.2010 kl. 20:30

2 identicon

Ég var að koma heim... brr kalt :)

Ég bara segi það; Ef ísland losnar ekki við 4flokka, þá er alveg eins gott að kála sér bara, þá erum við lúserar og aumingjar sem liggjum undir þessum aumingjum í þessum glæpaflokkum.

Þeir verða að fara, það er ekkert annað í stöðunni; Us or Them!

DoctorE (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 21:07

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið og undirtektir Haraldur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.10.2010 kl. 21:17

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvað, gastu ekki ornað þér við eldana DoctorE?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.10.2010 kl. 21:18

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Góðan daginn, Axel!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.10.2010 kl. 21:36

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Góða kvöldið,  Heimir, það er blíðan!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.10.2010 kl. 21:39

7 identicon

Nú kemur Jóhanna í 10 fréttum og segist ætla að kalla saman 4flokka mafíur og vinna vel eins og þau hafi alltaf gert.

Fokking móðgun að hlusta á þetta lið

DoctorE (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband