Gullið tækifæri til sóknar

Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að þing ASÍ nýti ekki þetta tækifæri til að losa sig við Gylfa Arnbjörnsson úr sæti forseta ASÍ, en ég óttast hið versta.

Ég þekki ekkert til Guðrúnar J. Ólafsdóttur en ég veit að enginn er svo slappur, svo aumur eða slík liðleskja að ekki taki Gylfa fram. Ef verkalýðs- hreyfingin hristir ekki núna af sér þessa hagfræðigungu og dragbít, þá á hún ekkert gott skilið og getur engu um kennt nema eigin aumingjaskap um sínar ófarir.

  


mbl.is Gylfi fær mótframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Hverju orði sannara!!

Gunnar Heiðarsson, 22.10.2010 kl. 12:45

2 identicon

Auðvitað vinnur stúlkan,  Annað væri þá eftir öðru á Íslandi.

klíka,

klíka

og meiri klíka

Jóhanna (IP-tala skráð) 22.10.2010 kl. 12:48

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið, ég vona hið besta en óttast hið versta! Það ætti að vera fullreynt hvernig langskólagengnir hagfræðingar gagnast til forystu fyrir vinnandi fólk.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.10.2010 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.