Löggiltir dópsalar

drugsÞað þarf enginn að velkjast í vafa um að þeir sem gróflega ofnota lyf að staðaldri stefna að engu öðru en eigin tortímingu, hvort sem þeir heita Jackson eða eitthvað annað.

Það er líka deginum ljósara að þeir læknar sem gefa út lyfseðla fyrir lyfjum til þeirra sömu einstaklinga í miklu meira magni en  eðlilegt getur talist eru engu betri en svörtustu dópsalar og þeirra ábyrgð er til muna meiri en dópistans, því þeir eiga að vita betur.

Hvað á að kalla íslenska lækna, sem ávísa á hálfsmánaðar fresti 3ja mánaða skömmtum af róandi lyfjum og það jafnvel margar tegundir, til sömu manneskjurnar, eins og ekkert sé sjálfsagðara?

Hvar er hið svokallaða rafræna eftirlit Landlæknis, sem átti að sögn að samtengja Apótekin og blokkera þannig misnotkun lyfseðla?  

Það kerfi, sem vafalaust kostaði einhverja tugi milljóna í uppsetningu og vafalaust annað eins í rekstri, virðist ekki einu sinni, samkvæmt minni reynslu, lyfta brún, hvað þá meira.

Dóp drepur, hver sem seljandinn er! Sjáið þetta myndband:


mbl.is Mál Jacksons tekur nýja stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

and drugs kill það er sko rétt og satt

Ásdís Sigurðardóttir, 4.1.2011 kl. 16:20

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það er enn ekki búið að finna upp pillur sem komast í hálfkvisti við METH eða Yaba...pillur drepa fólk hægt og í rólegheitunum, enn þessi tegund af amphetamíni er hreinlega eins og Antrax...

Óskar Arnórsson, 5.1.2011 kl. 03:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband