Þvílík reisn!

Ætlar því  ofbeldi, sem framið var á Breiðavíkur börnunum aldrei að ljúka. Lagt var upp með í uppgjöri þessa leiðindamáls að einskonar „þjóðarsátt“ yrði gerð um mannsæmandi bætur til þolenda ofbeldis og ranginda þessa alræmda „unglingaheimilis“.

En nú virðist, með úrskurði úrskurðanefndarinnar, sem salti hafi verið stráð í sár þeirra sem enn lifa af „viðskiptavinum“ þessa Dachau Íslands.

Til að bíta hattinn af skömminni taka þessir „eðal“  úrskurðarnefndarmenn sér hærri þóknun fyrir viðvikið, en þeir telja hæfa sem bætur til barnanna sem máttu þola áralanga niðurlægingu, misþyrmingarnar, nauðganir og ....og....!

Þvílík reisn er yfir sessu máli og meðferð þess!

Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því, að Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra láti þessa skömm standa!

Veði það niðurstaðan, er hún Jónanna mín sem áður var, mér endanlega horfin.

  


mbl.is Nefndarmenn fá meira en þolendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Axel, þessi Jóhanna þín, er áður var, er ekki sú sama í dag, hún ætti að vera þér horfin ..............................................................núna!!!

Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 01:19

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég ætla að dæma um það Guðmundur!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.3.2011 kl. 01:30

3 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Þó ekki væri Axel,  enda þín.

Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 01:36

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir bloggvináttuna Guðmundur!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.3.2011 kl. 02:05

5 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Tek heilshugar undir orð þín Axel.

Ég hef líka grun um að þú hafir kommenterað á mín skrif um sama mál einum of snemma . Þetta stalst inn á síðuna hjá mér þegar ég var rétt byrjuð, vistaði eitthvað vitlaust, eins og mín er von og vísa.

Bergljót Gunnarsdóttir, 19.3.2011 kl. 02:06

6 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Ekki minnast á það, dittó, vona að við getur skipst á skoðunum á eðlilegum nótum án  þess að vera endilega alltaf sammála til  þess er þessi bloggheimur tilkomin að því að ég tel,  enda engin ástæða til annarsæ

Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 02:16

7 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

getum, átti  þetta að vera!!

Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 02:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband