Kjaftshögg fyrir SA

Það er þá hægt eftir allt saman að gera kjarasamninga, án þess að fyrir liggi skilyrðislaust kvótaafsal frá ríkisstjórninni.

skötuselur2Þetta hlýtur að vera áfall fyrir SA sem hafa sagt gerð kjarasamninga við launafólk ekki mögulega nema fyrir liggi sú lausn í sjáaútvegsmálunum sem þeir krefjast.

Ætli minnki ekki, við þetta, kjafturinn á SA og LÍÚ mafíunni? 

Það er örugglega annasamt á salernunum í húsakynnum SA, þessa stundina. 


mbl.is Sömdu við Becromal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrir ári eða svo voru LÍÚ menn með hótanir um að sigla flotanum í land ef ekki yrði farið að vilja þeirra í kótamálum. Þessa hótun sína höfðu þeir ítrekað nokkurn tíma í fjölmiðlum með auknum þunga án þess að fá viðbrögð ríkisstjórnar, enda hótunin fráleit í sjálfum sér. Að lokum svaraði Jóhanna þeim því til að ef LÍÚ vildi frekar hafa flotann í landi en við veiðar þá væri ekkert annað í stöðunni en afhenda öðrum kvótann svo veiðar stöðvuðust ekki. LÍÚ minntist aldrei á að sigla flotanum í land eftir það.

Þetta karp LÍÚ kappa stóð yfir í endann á maí í fyrra að mig minnir og ummæli Jóhönnu komu fram í kvöldfréttatíma RÚV. Gaman væri ef einhver gæti rifjað þetta betur upp.

Gaman hafði ég af hótun Vilhjálms Egilssonar í nafni SA í garð Íslendinga þann 7 þessa mánaðar. Hún var á þá leið að ef landsmenn dirfðust að hafna Icesav þá yrðu engir kjarasamningar við þá gerðir. Ætli Villi sé götustrákur.

Kristján Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.4.2011 kl. 16:35

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Villi er kjánagrei.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.4.2011 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband