Nú kemur aftur til kasta Teits og Siggu

Nú er innanríkisráðherra vandi á höndum, ljóst er af fyrri málum sama eðlis að sama er hvað ráðherrann gerir, ákvörðun hans verður rökkuð niður og hann sakaður um valdníðslu, pólitíska embættisveitingu og það sem er verst af öllu, brot á jafnréttislöggjöfinni.

Beinast liggur auðvitað við að ráðherrann fari eftir niðurstöðu dómnefndarinnar og skipi annað hvort Eirík eða Þorgeir í embætti Hæstaréttardómara.

En þá kærir konan, sem er að mati matsnefndarinnar í lakari hópnum, og þá kemur til kasta kærunefndar jafnréttismála, sem kemst auðvitað að þeirri eðlilegu niðurstöðu,  nú eins og áður, að þar sem Eiríkur eða Þorgeir hafi hvorugur píku, hafi gróflega verið á kærandanum, konunni, brotið í hæfnismatinu og í framhaldinu skipun í embættið.

Getur jafnréttið orðið betra?

  

 


mbl.is Eiríkur og Þorgeir hæfastir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli minn

Hvað veist þú um það hvort þeir Eiríkur eða Þorgeri hafi píku?

Óli minn, 2.5.2011 kl. 21:37

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég veit auðvitað ekkert um það, þetta er skot í myrkri hjá mér, hrein ágiskun. En hafi þeir þannig útbúnað er vissara fyrir þá að koma því á framfæri, annars eiga þeir ekki séns þegar "úthlutunarnefnd misréttis" fær málið í hendur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.5.2011 kl. 21:45

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Hehehe...

hilmar jónsson, 2.5.2011 kl. 21:58

4 Smámynd: corvus corax

Ef sjálfstæðisflokkurinn væri nú við völd með spillingarkónginn Björn Bjarnason í sæti dómsmálaráðherra mundi hæfnismat að sjálfsögðu engin áhrif hafa heldur færi hann eftir þessari forgangsröðun um skilyrði og hæfni: 1. frændi Davíðs, 2. vinur Davíðs, 3. tryggur sjálfstæðishundur. Fleiri en eitt af skilyrðunum mundi að sjálfsögðu tryggja viðkomandi stöðu hæstaréttardómara, annars mundi eitt skilyrði duga. En nú er BB óhæfasti dómsmálaráðherra Íslandssögunnar ekki við völd svo það verður forvitnilegt að sjá hvernig fer. Flestar líkur benda þó til þess að annarlegir hagsmunir verði látnir ráða því hver fær stöðuna eins og VG og samfylkingin hafa sýnt að þau eru fullfær um og þarf ekki sjalla til.

corvus corax, 3.5.2011 kl. 07:27

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

corvus corax, eru menn búnir að gleyma látunum fyrir nokkrum vikum þegar forsætisráðherra réð karl í starf skrifstofustjóra alfarið eftir tillögu matsnefndar, sem mat hæfi umsækjenda?

Kona sem var í 5. sæti í hæfnisröðinni að mati nefndarinnar kærði og kærunefnd jafnréttismála komst að því að jafnréttislög hefðu verið gróflega brotin á "píkunni".

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.5.2011 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband