Svona fyrirsagnir eiga að varða við lög.

Það setur stöðugri menn en mig á hliðina þegar sagt er í fyrirsögnum að einhver fegursta og lögulegasta kona heims ætli að sýna  hold!

Það er stórhættulegt heilsu manna eins og mér sem er á miðjum aldri og er þegar á öllum þeim lyfjum sem þessum aldursflokki tilheyra að fá fréttir um yfirvofandi holdbirtingu. 

Svo er allt gabb, boðaðar myndir eru sem jólakort í samanburði við fyrri myndir af sama holdi, en hafa ekki framkallað annað en hækkaðan blóðþrýsting klámóðs karls eins og undirritaðs.

Oh, shit!

 

  


mbl.is Helle Berry sýnir hold
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð nú að segja að orðið "hold" verkar afar kynþokkaklént á mig enda næsti bær við orðið "flesk" sem þau í Fimmbókunum tóku með sér í útilegur.

Það er eitthvað mannætulegt við bæði orðin.

Klámsi 2 (IP-tala skráð) 26.5.2011 kl. 23:16

2 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Axel.. það er alt í lagi að horfa á steikina annarstaðar en borða heima........

Vilhjálmur Stefánsson, 26.5.2011 kl. 23:43

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú segir nokkuð Vilhjálmur!  Halle Berry er kostagripur, augnayndi, vovv, maður en ekkert umfram það. Það eru líka allar konur, frá augum hvers og eins.

Rétt eins og karlar frá sjónarhóli kvenna. Höfum við einhverntíma spáð í það hvað konurnar sjá við okkur karlana? Ólögulegir sem við erum?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2011 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband