Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Hvenær er nautaat ekki harmleikur?
12.8.2011 | 00:33
Aðdáendur þessa villimannaleikja réttlæta þá gjarnan með þeirri klisju að nautið eigi jafna möguleika á móti manninum.
Í gær skoraði nautið og þá er það kallað harmleikur af einhverjum blaðamannabjálfa.
Eini harmleikurinn í þessu máli öllu er að nautið sigrar því miður ekki nægjanlega oft til að þessi villimennska verði endanlega lögð af.
Harmleikur í nautaatshringnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fréttir | Breytt s.d. kl. 00:43 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 1027595
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Harmleikurinn var að nautið lét lífið.
Sigurður Helgason, 12.8.2011 kl. 01:50
Nautaat er ekkert nema villimannslegt rugl, bara "gott" á gaurinn; Verst að nautið slapp ekki
DoctorE (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 07:24
Voða asnalegt að tala um "brjálað" naut. Ég held að flestir yrðu frekar æstir ef þeim væri bolað inn í hring fyrir framan trylltan múg og síðan stungið spjótum í líkamann og reynt að særa til ólífis.
Ég get ekki að því gert en í hvert skipti sem nautin særa/drepa einhvern (hvort sem það er nautabaninn eða aðrir þáttakendur) þá brosi ég út í annað.
Þetta er bölvuð villimennska þessi "íþrótt".Baldur (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 08:44
Nautið er alltaf drepið eftir atið, hvort sem það "vinnur eða tapar", og þannig hefur það alltaf verið. Þeir segja að naut sem hefur fengið þessa meðferð verði "taugaveiklað" og því ekki hægt að láta það lifa.
Þetta er semsagt leikur nautabanas að nauti sem á að drepa, hvort sem nautabaninn falli fyrir því áður eða ei.
Bergljót Gunnarsdóttir, 12.8.2011 kl. 09:32
Já, auðvitað lifir nautið aldrei af, enda var orðið sigur í gæsalöppum. En nautið skorar eigi að síður "feitt", takist því að gera banamann sinn óvígan. Það gerist of sjaldan.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.8.2011 kl. 11:02
Harmleikurinn er sá að manneskjan lést! Naut er dýr, naut er hamborgari. Bjánaleg ummæli hér að ofan.
Baldur (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 13:44
Baldur, taktu þér tak krakki, það er ekki verið að slátra nautum á nautaötum til matar, kjötið er gersamlega óætt.
Nautaat er aðeins skemmtiatriði fyrir sjúkt fólk sem fær fróun af því að sjá dýr lemstruð og kvalin. Skemmtunin þykir þeim mun betri og safaríkari því lengur sem tekst að kvelja dýrið og draga dráp þess á langinn.
Það er auðvitað dapurt þegar menn láta lífið, jafnvel óþverrar eins og nautabanar, en enginn harmleikur.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.8.2011 kl. 14:20
En hugsaðu þér Axel hversu óréttlátt þetta er, ekkert naut sem fer inn í hringinn fær að lifa. Ef því tekst að stórslasa eða drepa nautabanann er það umsvifalaust drepið, ef því tekst það ekki, drepur nautabaninn það.
Síðan eru nautin sem eru ekki nógu blóðheit til að gera neitt í málunum, eins og að kippa sér neitt sérstaklega upp við að Piccadorarnir stingi í þau örvaroddum, með sköftum sem fá örvarnar til að hamast í sárinu til að æsa þau upp.
Þegar það gerist er nokkrum bjöllukúm húrrað inn á völlinn, og boli látinn elta þær út, og lítið gert úr honum , við baul og svívirðingar áhorfenda, þegar hann hverfur af leikvanginum. En allt við það sama , slíkur tuddi fær heldur ekki að lifa.
Ég bjó á Spáni og hreinlega elskaði nautaat, en þegar ég fór að skynja hvað var í raunverulega í gangi, fóru heldur betur að renna á mig tvær grímur. Verð þó að viðurkenna að að þó svo mér finnist þetta fremur óhugnanlegt var eitthvað þarna sem hreif, þangað til ég áttaði mig á að boli átti aldrei sjens. Þá snerist ég alfarið á móti nautaati.
Að sita í 40 - 50 stiga hita og svita og fylgjast með góðu ati var eins spennufíkn sem fékk útrás, svo furðulegt sem það er, en það er liðin tíð.
Bergljót Gunnarsdóttir, 13.8.2011 kl. 02:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.