Punglegt ergelsi

testiclesDönsk kona, sem er í haldi lögreglu fyrir að hafa nartað svo illa í kviðsvið eiginmannsins að úti lágu djásnin, ber að eigin- maðurinn hafi sjálfur bitið í punginn á sér.

Það er auðvitað farsælast að hjón borði sinn þorramat í sátt og samlyndi.

Þá er það bara spurningin hvort kviðsviðin hafi verið hæfilega „verkuð“ svona mitt á milli Þorra?

  

 


mbl.is Beit í eistu eiginmanns síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 21.8.2011 kl. 19:37

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hann er með sitt á hreinu þessi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.8.2011 kl. 19:49

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eitthvað hefur nú gengið á á því heimilinu, segi nú ekki margt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.8.2011 kl. 20:24

4 Smámynd: Vendetta

Ætli konan hafi verið að fagna með Eistunum, eins og Össur? Þetta er auðvitað lostæti og ómótstæðilegt fyrir margar konur. En þessi blessaða danska kona hefur bara hreinlega farið yfir um í áfergju sinni.

Easter Eggs

Vendetta, 21.8.2011 kl. 21:42

5 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Minna svolítið á páska, þessi síðustu.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 21.8.2011 kl. 21:59

6 identicon

Haha já, þetta er mjög fyndið. Ég las aðra frétt um daginn þar sem karlmaður beit snípinn af konunni sinni, fannst það ekki smá fyndið. Það sem er eiginlega fyndast við þetta er að maður liggur núna á sjúkrahúsi með alvarlega áverka haha.

Halldór (IP-tala skráð) 21.8.2011 kl. 23:54

7 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Þegar hungrið harðast er

hjá snótum ungum

finnst þeim gott að gæða sér

á glóðvolgum ástarpungum.

Þorvaldur Guðmundsson, 22.8.2011 kl. 10:00

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.8.2011 kl. 10:53

9 identicon

Mér finnst nú frekar siðlaust að gera grín að manni sem liggur stórslasaður á sjúkrahúsi eftir geðsjúka konu sýna sem réðst á hann með hníf og nánast reif af honum kynfærin með tönnunum sínum.

Nei djók hahahahh!1!, kona réðst á mann, enn fyndið!.... Þið eruð siðlausir, drengir mínir.

Gunnar (IP-tala skráð) 22.8.2011 kl. 22:15

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Gunnar elsku karlinn, það verður bara svo að vera þó við lítum þetta ekki sömu augum.

En það hefur aldrei skaðað mig minnstu vitund, nema síður sé, að reyna að sjá það broslega í jafnvel pínlegustu uppákomum sem hent hafa bæði mig og aðra.

Svo er rétt að benda þér á það Gunnar að helmingur gesta minna við þessa færslu, að þér frátöldum, eru þroskaðar konur, sem kunna því kannski ekki að vera kallaðar drengir. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.8.2011 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband