Af hverju fær ASÍ hland fyrir hjartað gagnvart Kosti?

Í fyrri verðkönnunum ASÍ hefur alltaf verið tekið fram að  Kostur Dalvegi hafi neitað að taka þátt í könnunni. Hvernig er það,  hafa verslanir neitunarvald um það að greint sé frá því hvað vörurnar hjá þeim kosta?

Með þátttöku í könnun sem þessari er sennilegast átt við að með samvinnu við viðkomandi verslun þá þurfi ASÍ ekki að kaupa viðkomandi vörur og greiða fyrir þær.

En af hverju þessi aumingjaskapur hjá ASÍ gagnvart Jóni G. Sullenberger, eða hvað hann heitir sá góði maður, að láta hann komast upp þetta? Af hverju verslar ASÍ ekki einfaldlega vörurnar hjá Sullenberger til að komast að því hvað þær kosta?

Varla getur Sullenberger neitað fulltrúa ASÍ að versla hjá sér. ASÍ getur svo gefið fjölskylduhjálpinni vörurnar og slegið tvær flugur í einu höggi.

  


mbl.is Bónus oftast með lægsta verðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

EInmitt, það hlýtur að vera hægt að græja þetta, ég hef verslað þarna einu sinni og læt þá ferð duga mér.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.10.2011 kl. 13:50

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég hef aldrei komið í Kost, Ásdís. Hvað veldur að þú ætlar ekki aftur?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.10.2011 kl. 22:16

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Höfðaði ekki til mín, of amerískt og ekkert spes verð að mínu mati

Ásdís Sigurðardóttir, 9.10.2011 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.