Staðbundin starfsgeta

Ætla má af þessari ályktun, starfsmanna réttargeðdeildarinnar á Sogni, að jákvæður árangur réttargeðdeildarinnar sé algerlega háður því að starfsemin fari fram á Sogni og hvergi annarstaðar.

Sogn er samkvæmt þessu eini staðurinn á jarðríki þar sem þessir starfsmenn geta unnið vinnuna sína.

Ég sé ekki betur en leggja þurfi starfsfólkið á Sogni  inn á Klepp til endurhæfingar,  með hinum sjúklingunum, svo hjálpa megi þeim að takast á við lífið á ný, utan Sogns.


mbl.is 44 útskrifaðir af 50 á Sogni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er líklega rétt hjá þeim. Í þessum landshluta er engin venjuleg mælistika á geðheilsu og því mun auðveldar að ná góðum árangri og þar með útskrift.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 14.10.2011 kl. 18:09

2 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Þetta virðist  snúast svo til eingöngu, frá starfsmanna hálfu, um að þurfa ekki að sækja vinnu um lengri veg. En sem betur fer er alltaf maður í manns stað, ef starfsfólkið sér ekki smugu til að skipta um vinnustað.

Mér finnst einhvernveginn vanta hlut vistmanna í þessari umræðu, þó svo að sagt hafi verið að húsnæðið sem fengist á Kleppi væri bæði stærra og hentugra, af fagfólki. Ég sé ekki mikinn mun á því hvort fularnir í Ölfusinu eða Kleppsholtinu syngja í kringum staðinn, vistmönnum til ánægju, þegar þeim fer að batna.

Bergljót Gunnarsdóttir, 15.10.2011 kl. 22:26

3 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Fuglarnir skyldi ég sagt hafa.

Bergljót Gunnarsdóttir, 15.10.2011 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.