Jarðgöng og ný brýndar tennur

Þessi Vaðlaheiðargöng eru eflaust það sem koma skal í fyllingu tímans, já fyllingu tímans.

En menn hljóta að spyrja sig, við þær aðstæður sem nú eru uppi, hvort ekki væri nær að beina þessum fjármunum, liggi þeir á lausu, sem þeir hljóta að gera, inn á aðrar brautir, sem skapa fleiri störf?

Eru fáein störf bormanna, með fullri virðingu fyrir þeim, það sem allt veltur á þessa dagana að því frátöldu að Guðjón Þórðarson er mættur með ný brýndar tennurnar til Grindavíkur?

Guðjón, verður eins og göngin opinn í báða enda og til alls líklegur, að sögn kunnugra. Báðar þessar aðgerðir eru mjög umdeildar og útkomu þeirra beggja vitum við ekki fyrr en í fyllingu tímans, þegar óafturkræfur skaðinn kann að hafa orðið.


mbl.is 1 milljarður vegna Vaðlaheiðarganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ef maður er ekki opinn í báða enda, þá deyr maður, sagði Ingimar Eydal

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.11.2011 kl. 22:01

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ingimar Eydal var snillingur, í öllu tilliti, með fyrirvara um pólitíkina, sem er auðvitað afstæð eins og flest.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.11.2011 kl. 22:21

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég fór Gunnar á fund með Guðjóni í morgun á Bryggjunni. Ekki að minni ósk, fór  með vinnuveitandanum,  á kaupi auðvitað. Þeirri kaupgreiðslu var sóað, þvílík steypa, sem  þessi fundur var.

Menn smjöðruðu í það óendanlega fyrir þessum manni, sem hefur ekkert annað í farteskinu en slæmt umtal og neikvæðan feril.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.11.2011 kl. 22:28

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það þýðir ekkert að leggja upp með neikvæðni í garð Guðjóns. Hann er góður þjálfari og nær árangri þar. Sennilega vantar eitthvað upp á kunnáttu hans í mannlegum samskiptum en munum að sjaldan veldur einn, þá tveir deila.

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.11.2011 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.