Þetta eru stórmerkilegar upplýsingar

Það er með ólíkindum að ríkisstjórn, sem er á síðasta ári kjörtímabilsins og hefur þurft að eyða því sem liðið er af kjörtímabilinu í einhverjar óvinsælustu aðgerðir lýðvelsissögunnar til viðgerða og lagfæringa á eyðileggingu Íhaldsins og Baksóknarflokksins á efnahagskerfi landsins, skuli þó njóta stuðnings tæps þriðjungs kjósenda.

Ef hryllingssögur Íhalds- og Baksóknarflokksins um ríkisstjórnina ættu við rök að styðjast ætti ríkisstjórnin ekki að hafa neitt fylgi, alls ekkert.

Sjálfstæðisflokkurinn, sem nýtur stjórnarandstöðunnar, í setu svona gríðarlega óvinsælar ríkisstjórnar mælist ekki með nema rétt normal kjörfylgi frá árum áður, og þeir fagna. Þeir ættu, væru ríkisstjórnarnætursögur þeirra sannar, að mælast með 60 til 70% fylgi.

Baksóknarflokkurinn mælist hann með nokkurt fylgi? Gæti hann og hitt afturhaldið myndað saman stjórn væri þessi könnun úrslit kosninga? Nei tæplega. Er það ekki hastarlegur dómur þjóðarinnar um þeirra verk fyrir og þá ekki síst eftir hrun?

Staðreyndin sýnir að þjóðin man þeim verkin og mun muna þau í komandi kosningum.

Það ætti að setja allan helvítis Íhalds- og Baksóknarflokkinn á 10.000 kr seðilinn til að tryggja að þjóðin gleymi aldrei níðingsverkum þeirra.

  


mbl.is Ríkisstjórnin tapar fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gallup mældi ekki þjóðarpúlsinn, fremur þjóðarfretið. Ekkert að marka þetta. Hrunflokkarnir, Íhaldið + hækjan fá samanlagt í mesta lagi 25-30%.

Innbyggjarar geta varla verið það miklir fábjánar.   

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 21:55

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Held að Haukur sé meðetta...

hilmar jónsson, 2.4.2012 kl. 21:57

3 identicon

Hvert var hlutfall þeirra sem tóku afstöðu í þessari könnun? Það kemur hvergi fram. Og voru óákveðnir þráspurðir um afstöðu til íhaldsins? Það hefur nú gerst áður.

Fyrrum Trítilóða öndin (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 22:02

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þó þetta væri "staðreyndin" þá ætti það að vera helflokkunum nægt íhugunarefni, hvað sé ekki að virka í þeirra stefnu. En það er næsta lítil hætta á því að Vafningurinn og Fléttan  átti sig á því.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.4.2012 kl. 22:04

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Fyrrum Trítilóða öndin veit hvernig svona kannanir eru unnar og hannaðar í átt að þeirri niðurstöðu sem gagnast kaupanda könnunninnar sem best.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.4.2012 kl. 22:09

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þið lifið í annarlegum heimum

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.4.2012 kl. 00:47

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sá "heimur" er sá veruleiki sem sjálfstæðisflokkurinn skildi eftir sig eftir hart nær tveggja áratuga stjórn. Flóknara er það nú ekki Gunnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.4.2012 kl. 07:41

8 identicon

Það eru aðeins 3 ár síðan Hrunflokkarnir, Íhaldið + hækjan hlupu á brott frá gjaldþrota þjóð með allt niður um sig. Skuldirnar voru í kringum 10 þúsund milljarðar. Eitt þúsund milljörðum var skellt á 300.000 manna samfélag, 9 þúsund milljarða þurfti útlandið að afskrifa. Heimsmet, ekki einu sinni per capita, eins og flest okkar heimsmet hafa verið. “Yes, we are quite different” sagði forseta ræfillinn. “Indeed we are”! Hluti af þessu fjármagni liggur “save” á leynireikningum erlendis, í "eigu" þekktra manna með flokkskírteini Sjalla eða hækjunnar. Svo eru menn að telja sér trú um að Hrunflokkarnir tveir fái meirihluta við næstu kosningar. Halló, í hvaða "annarlegum heimum" búa menn, svo ég noti orðalag Gunnars Th.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 3.4.2012 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband