Apríl 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Atkvæði grafin úr fönn
28.10.2012 | 19:34
Sú fullyrðing framsóknarmanna að Framsóknarflokkurinn hafi sagt skilið við klíkuskap og baktjaldamakk fortíðar er lýðskrum og þvæla sem ekki fær staðist. Sem sést best á vinnubrögðum flokksins þessa dagana. Lýðræði og gegnsæi lekur nú ekki beinlínis af aðferð Framsóknarflokksins til að skipa á framboðslista sína fyrir komandi Alþingiskosningar.
Frambjóðendur sem boðið hafa sig fram á lista Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi hafa þrjá daga til að smala nýjum félögum í flokkinn, en kjörskrá vegna kjördæmisþings, sem kýs á milli frambjóðenda, verður lokað 1. nóvember.
Frambjóðendum eru gefnar frjálsar hendur að smala sér sem flestum atkvæðum á kjördæmaþing flokksins með þeim aðferðum sem best gefast. Það er eins og markmiðið sé beinlínis að skapa jarðveg fyrir spillingu og ala á sem mestri tortryggni og úlfúð. Enginn flokkur kemst með tærnar þar sem Framsókn hefur hælana í þeirri list.
Vonandi skellur ekki á norðanáhlaup meðan smalað er, svo frambjóðendurnir þurfi ekki að grafa fylgi sitt úr fönn, enda misleiknir í þeirri list.
![]() |
Hafa þrjá daga til að smala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.10.2012 kl. 01:35 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.4.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 1027958
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
axelma
-
beggo3
-
emilssonw
-
snjolfur
-
saemi7
-
asthildurcesil
-
thorsteinnhgunnarsson
-
jensgud
-
reykur
-
joningic
-
nafar
-
bofs
-
olijon
-
gthg
-
olafurjonsson
-
kristjangudmundsson
-
mosi
-
josefsmari
-
hlf
-
johanneliasson
-
svarthamar
-
heidarbaer
-
thruman
-
ludvikjuliusson
-
stefanjul
-
axelaxelsson
-
svanurg
-
viggojorgens
-
rlingr
-
boggi
-
fosterinn
-
arikuld
-
trj
-
kliddi
-
kristbjorn20
-
ksh
-
helgigunnars
-
maggib
-
prakkarinn
-
hecademus
-
skari60
-
gudjul
-
jonsnae
-
krissiblo
-
aztec
-
kristjan9
-
gisgis
-
komediuleikhusid
-
flinston
-
muggi69
-
gorgeir
-
keh
-
arnorbld
-
gullilitli
-
skarfur
-
sveinne
-
zerogirl
-
finni
-
kaffi
-
taraji
-
keli
-
gretarmar
-
zeriaph
-
fun
-
seinars
-
hordurj
-
esgesg
-
jonhalldor
-
icekeiko
-
kjarri
-
siggisig
-
bjornbondi99
-
gullaeinars
-
gustichef
-
gusg
-
raftanna
-
himmalingur
-
baldher
-
minos
-
huldumenn
-
valli57
Athugasemdir
Samála þetta er hroki og flokksræði sem hrjáir alla flokka á alþinginu!
Sigurður Haraldsson, 28.10.2012 kl. 19:53
,,...Framsóknarflokkurinn hafi sagt skilið við klíkuskap og baktjaldamakk fortíðar..."
Það sást á myndum frá fundinum fyrir norðan, að þar voru engir sem ekki þekkja svoleiðis vinnubrögð.
JR (IP-tala skráð) 28.10.2012 kl. 19:57
Það fylgir að geta sett upp viðeigandi sauðasvip.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.10.2012 kl. 20:05
Ef ég man rétt þá fundust framsóknaratkvæði innan þilja fyrir nokkrum árum, þá margra áratugagömul, svo þau fara ýmsar krókaleiðis framsóknaratkvæðin
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2012 kl. 21:08
Það verður allt tekið fegins hendi!
Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.10.2012 kl. 21:22
Sennilega
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2012 kl. 22:36
Mér finnst nú fréttin lýsa meira hugarfari fréttamanns en raunverulegum atburðum..
Ef að þið ágæta fólk væruð til í að leggja niður ykkar fordóma eitt augnablik og skoða hvernig staðið er að málum og hverjir gera það þá mynduð þið kanski fá nýja sýn á málið..
En kanski er það til of mikils mælst..
Eiður Ragnarsson, 29.10.2012 kl. 15:07
Þetta eru ekki fordómar þetta er að henda gaman að fréttum og efni tengdum þeim.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2012 kl. 17:24
Ég lagði frá mér fordómana Eiður en tók þá strax upp aftur, því án þeirra leit þetta mun verr út.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.10.2012 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.