Hugsað upphátt!

Helsti galli og veikleiki ríkisstjórna á Íslandi hefur verið sá að þær hafa verið samsteypustjórnir tveggja eða fleiri flokka. Þannig ríkisstjórn verður aldrei annað bræðingur af stefnu þeirra flokka sem hana mynda, málamiðlun.  Fyrir vikið hefur málefnasamningur ríkisstjórna oft orðið hvorki  fugl né fiskur.

Ef marka má skoðanakannanir þá hyllir jafnvel undir hreinan meirihluta Framsóknar á Alþingi. Þó ég sé ekki stuðningsmaður Framsóknar þá finnst mér þetta vera, af framansögðu, bæði spennandi og áhugavert.

Nái einn flokkur meirihluta á Alþingi, verður stefna ríkisstjórnarinnar „hrein“, enginn bræðingur, engin málamiðlun. Ríkisstjórnarflokkurinn framkvæmir sína stefnu ómengaða og þyrfti ekki að fórna kosningaloforðum á altari málamiðlana og bæri þá einn ábyrgð á framkvæmdinni og árangrinum.

Það vaknar hjá mér sú spurning hvort ég ætti ekki að brjóta odd af oflæti mínu, slá til og kjósa Framsókn, geti það orðið til þess að fá fyrstu meirihlutastjórn eins flokks í lýðveldissögunni.

Því ekki? Allt er betra en Íhaldið!

Það skemmir svo ekki hugmyndina að með meirihluta Framsóknar og innanvið 17% fylgi Íhaldsins yrði niðurlæging þeirrar meinsemdar alger. 


mbl.is Framsókn fengi 40%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur verið regla hjá mér í lífinu að kjósa ekki Framsókn... EN ég verð að viðurkenna að það freistar að hoppa á vagninn... Framsókn hefur endurnýjað sinn hóp frá A-Ö og mér líst ágætlega á Frosta með Sigmundi, "Indefence" hópurinn var sjálfsprottinn af kraftmiklu fólki með réttæti að leiðarljósi, þar var unnið ómetanlegt starf fyrir þjóðina í sjálfboðavinnu... er það ekki þannig fólk sem við þurfum á að halda þó að vörumerkið sé Framsókn, ég hallast að því !

Ólafur (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 10:18

2 identicon

Sæll.

Vandinn við Sjallana er sá að sá flokkur er orðinn að miðjuflokki og því langsótt að kalla hann íhald. Sjallarnir eru að mörgu leyti ekki frábrugðnir Sf enda margir Sjallar hrifnir af risaeðlunni ESB.

Helgi (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 10:37

3 Smámynd: Sigurður Helgason

Ég sagði það, að ég myndi höggva af mér báðar hendur ef ég greiddi framsókn atkvæði mitt, ég verð víst handalaus eftir kosningar.

Sigurður Helgason, 5.4.2013 kl. 11:13

4 identicon

Já ég er nokkuð viss um að ég kjósi Framsókn sem ég hef aldrei gert áður, og þá aðallega vegna þess að mér lýst svo vel á hana Vigdísi Hauksdóttur og hennar elskulegu skoðanir á innflytjendum.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 16:07

5 identicon

Auðvitað er gaman að vera í meirihluta. Áfram Framsókn! Þið vinnið leikinn!

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 17:09

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Frægasta einflokksstjórn á Íslandi var ríkisstjórn Framsóknarflokksins á árunum 1927-1931 undir forsæti Tryggva Þórhallssonar. „Sterki“ maðurinn í stjórninni var Jónas frá Hriflu sem „barðist sem ljón með Framsóknarkredduna í annarri hendi en sverðið í hinni“ eins og maður einn ágætur sagði.

Jónas átti sínar góðu hliðar. Hann tók af skarið sem dóms- og menntamálaráðherra á ýmsu sem betur mátti fara í dómsmálum og héraðsskólarnir urðu að staðreynd í höndum hans. Hann sýndi mikla framsýni að láta byggja þá þar sem jarðhiti var fyrir til að spara húshitunarkostnað og reksturinn sem hagkvæmastan.

En hann átti erfiðar stundir í pesónulegum deilum við andstæðinga sína sem skaðai oft báða deiluaðila. Þannig varð deilan við Helga á Kleppi einhver furðulegasta deila sem um getur og olli miklum átökum í fjölmiðlum.

Naut Jónas mikillra vinsælda langt út fyrir Framsóknarflokkinn sem síðar átti eftir að breytast. Hann einangraðist í Flokknum vegna þess hve ráðríkur hann þótti en aðalandstæðingur hans voru yngri mennirnir í flokknum Eysteinn og Hermann. Afstaða Jónasar til ýmissa málefna varð umdeild, t.d. deilur við listamenn á stríðsárunum og afstaðan til Bandaríkjamanna í upphafi Kalda stríðsins en hann vildi tengjast þeim sem best sem olli aukinni tortryggni.

Við höfum nokkrum sinnum haft einflokks stjórn, minnihlutastjórnir Alþýðuflokks tvívegis og sama má segja reyndar um utanþingsstjórnina sem er mjög sérkennilegt fyrirbæri.

Góðar stundir.

Guðjón Sigþór Jensson, 5.4.2013 kl. 17:56

7 identicon

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=55736&pageId=996730&lang=is&q=Reglugj%F6r%F0%20um%20takm%F6rkun%20%E1

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 19:03

8 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég er að hugsa um að kjósa Framsókn af því að Sigmundur skilur alþýðuna vegna þess að hann hefur brotist frá fátækt til velmegunar á dugnaði og eljusemi.

Ég er að hugsa um að kjósa Framsókn vegna umburðarlyndis Vigdísar Hauksdóttur og takmarkalausra gáfna hennar.

Ég er að hugsa um að kjósa líka Framsókn vegna frægðaverka þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar.

hilmar jónsson, 5.4.2013 kl. 19:40

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er allt rétt hjá þér Guðjón, ég er að tala um lýðveldistímann því taldi þá stjórn sem þú nefnir ekki með. Svo tel ég ekki umræddar minnihluta starfstjórnir til eiginlegra ríkisstjórna eðli þeirra vegna.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.4.2013 kl. 21:13

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Elin, svíður þig enn undan haftareglugerð frá 1931, frá upphafi  sjálfrar heimskreppunnar? Er nú ekki nokkuð langt til seilst?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.4.2013 kl. 21:21

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Allir flokkar hafa sinn djöful að draga Hilmar, mis mikið að vísu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.4.2013 kl. 21:23

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

það verður samt að hafa í huga að framsóknarflokkurinn á 3. áratugnum og í upphafi þess 4. var allt annars eðlis en framsóknarflokkur nútímans.

Eg segi fyrir minn hatt, að mér finnst Jónas frá Hriflu oft ekki njóta sannmælis. Hann kom ótrúlegustu hlutum í gegn og framsóknarflokkurinn stóð á þessum tíma að ýmsum réttarbótum almenningi til handa í samstari við Alþýðuflokkinn. það er sennilega ekki tilviljun að Jónas kom líka að stofnun Alþýðuflokksins. Hugmyndin var að alþýða manna til bæja og sveita ynni saman gegn Íhaldsflokknum/Sjálfstæðisflokknum.

Á þeim tima var líka ákveðin hugmyndafræði á bakvið Framsóknarflokk. Samvinna. þ.e.a.s. að fólk myndaði félagasamtök til að vinna saman að hagsmunamálum sínum td. í verslun.

Með tímanum fór þetta nú allt svona og svona og þarf ekki að rekja sérstaklega. Í rauninni hvarf þessi framsóknarflokkur og nýr tók við. Á síðustu áratugum 20. aldar bjargaði framsóknarflokkurinn sér fyrir horn með sniðugum auglýsingum korter fyrir kosningar og/eða lofaði einhverju sem fittaði inn akkúrat á því tímabili. Hann sem sagt varð soldið mikið popúlískur sem kallast. Sigmundur er að byggja á þeim grunni. Popúlíska grunninum. Með alveg fáheyrðu kosningaoforði í þessu ákv. tlfelli. Hann ætlar að lækka skuldir fólks og láta það fá hagstæð lán - og enginn borgar. (nema þá útlendingar hugsanlega).

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.4.2013 kl. 21:33

13 identicon

Hnífjöfn helmingaskiptin voru vissulega samvinna. Spillingin var indæl og góð.

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=216586&lang=fo

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 21:45

14 identicon

Hilmar Jónsson kaldhæðni þín segir meira um þig,

en um gengi Framsóknarsóknarflokksins.

Andrés Ingi (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 21:59

15 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já. þarna 1959, hafa líka orðið stórar breytingar frá 3.og 4. áratugnum.

Sjallaflokkur hefur þarna fallist á öll grunnatriðin varðandi réttindi almennings sem var barist um á 3.og 4. áratug. Sjallaflokkur var á móti bókstaflega öllum réttindum almennings. Hann var á móti Alþýðutryggingum, á móti lögleiðingu hvíldartíma sjómanna o.s.frv. o.s.frv. - hann vildi bara að almenningur væri réttlaus. þetta er alveg ótrúlegt. Uppúr stríði fer hann smá saman að fallast á grunnuppbyggingu samfélagsins - þó áfram væri hann að bögglast gegn öllum framförum, þá var það ekki af eins mikilu ofstæki og hörku og fyrir stríð.

það sem skeður svo á ,,vinstri væng" er að Kommúnistar/sósíalistar fá aukið vægi og fylgi. Jónas frá Hriflu var afar tortrygginn gagnvart íslenskum kommúnistum/sósialistum og uppúr stríði og með tilkomu togstreytu milli BNA og Sovét - þá leit hann þannig á að íslenskir kommúnistar/sósialistar væru mestanpart bara framlenging á Stalín.

Í restina mildaðist því Jónas mikið í afstöðu til Sjalla og smám saman varð Sambandið og Kaupfélögin að þessu veldi á Íslandi og bilið milli Sjalla og Framsóknar styttist alltaf.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.4.2013 kl. 22:06

16 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Og ps. Talandi um Jónas, þann merka mann, kosti og galla, og afþví að Helgi á Kleppi er nefndur til sögunnar (faðir Ragnhildar ráðherra Sjálfstæðisflokks) - að þá á þessum tíma eru geðlækningar ný komnar til sögunnar. Mikil virðing var borin fyrir læknum. Jónas haði átt í stríði við lækna og td. ávítt þá fyrir peningaeyðslu og afnam td. fríðindi þórðar Sveinssonar læknis á kleppi og á þeim tíma skipaði ráðherra lækna í embætti og skipanir Jónasar þóttu ævintýranlegar og pólitískar. þ.e.a.s. hann átti í stríði við lækna, má segja.

Sjallar notfærðu sér þetta og börðu látlaust á Jónasi vegna þessa.

þar á undan hafði komið upp Bankamálið. Þegar jónas neitaði að bjarga Íslandsbanka og var talinn af Sjöllum hafa vldið sjávarútveginum stórtjóni. En Sjallar áttu sjávarútveginn eins og hann lagði sig á þeim árum sem núna. Ólafur Thors náttúrulega tengdur Kveldúlfi oþh.

Fleiri mál eru þarna í aðdraganda. Jónas var í miðju stríði við Sjalla, má segja. Og ég er ekki að ýkja. þetta var stríð þar sem Jónas gaf aldrei tommu eftir og ef Sjallar fóru að ybba gogg - þá kom alltaf einn gúmorren frá Jónasi.

Ok. þá kemur ,,Stóra Bomban". Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi (sem Jónas hafði reyndar skipað í embætti) ber uppá dómsmálaráðherrann að hann sé í raun geðveikur og vill fá alþjóðlega nefnd geðsýkisfræðinga til að skera úr um málið.

þetta er náttúrulega með ólíkindum. Og þetta er 1930 og alþingishátíðin á þingvöllum framundan Konungskoman og allt.

þetta er alveg gríðarlega þungt högg sem Jónas fær. Hvað gerir Jónas? Hann sest niður og skrifar eina sína frægustu grein. Grein sem er svo vel skrifuð og yfirveguð að hún er pólitísk klassík.

Samt sem áður er þetta gríðarlegt högg sem hann fær. Afstaða mann til málsins í kjölfarið fór svo algerlega eftir pólitískum línum.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.4.2013 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband