Vasaklúta viðtöl

Ég held að forstjórar Bónus og Skeljungs ættu, í stað þess að gráta úr sér augun í fjölmiðlum, að beita sér fyrir því innan SA að samtökin gyrði sig í brók og gangi að sanngjörnum kröfum launþega og afstýri þannig því tjóni af verkfallaðgerðum sem þeir óttast svo mjög.

Svona eymdarvæl, ásakanir og hálfgerðar hótanir sumra atvinnurekenda í garð launþega í fjölmiðlum skila engu, nema áframhaldandi verkföllum.

Sé það óskin, verði þá þeirra vilji.


mbl.is Loka þyrfti öllum verslunum Bónuss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Forstjórarnir hóta því kannski næst að þeir þurfi að flytja til útlanda. Það trikk virðir virka vel. 

Wilhelm Emilsson, 23.5.2015 kl. 18:52

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ætli það sé ekki Wilhelm, álíka mikil eftirspurn eftir íslenskum forstjórum erlendis og töframönnunum úr bönkunum?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.5.2015 kl. 20:11

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Jú, það er sennilega nokkuð nærri lagi. En kannski verður Ísland aftur Sviss norðursins ;) 

Wilhelm Emilsson, 23.5.2015 kl. 23:19

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er það ferli ekki þegar byrjað?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.5.2015 kl. 23:36

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nebb þessir dúddar hanga hér eins og ormar á gulli, sem þeim hefur verið úthlutað af stjórnvöldum og fara hvergi.  En ég man vel eftir einum forstjóra L.Í.Ú. sem gjarnan var nefndur "grátur"Enda grét hann í öllum viðtölum um hvað útgerðin ætti nú bágt.  Þessir hafa mjög sennilega lært við hnén á honum um hvernig eigi að komast af við lýðinn á Íslandi.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.5.2015 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.