Súkkulaði og sjór
7.12.2007 | 13:20
Nýjasta bullið til að hafa fé af auðtrúa fólki, sem telur að það geti spornað við eðlilegri för okkar til móts við elli kerlingu, er að maka það út í súkkulaði frá hvirfli til ilja. Þetta á að vera mýkjandi, vinna gegn stressi, gefa djúpa slökun og gott útlit.
Þetta er eins og með Maltið en eins og allir vita er það Nærandi og styrkjandi, gefur hraustlegt og gott útlit, bætir meltinguna.
Ef þessi súkkulaði spa meðferð, eða hvað þetta bull nú heitir, á að bæta meltinguna líka þá þarf líklega að sleikja súkkulaðið af.
Svo er komin lausn á táfýluvandamálinu. Eða eins og segir í auglýsingunni og þar er sagt er frá innihaldinu á dulúðlegan hátt:
Er táfýla og viðvarandi líkamslykt vandamál hjá þér þrátt fyrir þvotta. Nú er komið lausn á þessu vandamáli sem heitir Dr. Mist, sem er verðlauna uppfinning og er unnið úr hreinu vatni, salti og steinefnum úr Dauðahafinu, losaðu þig við lyktina strax í dag. -Eða eitthvað á þessa leið.
Hreint vatn, salt og steinefni er ekkert nýtt, hvað þá eitthvert undra efni, þetta efni umlykur Ísland og þekur 70% af yfirborði Jarðar, þetta efni er kallað SJÓR .
Ekki veit ég um verðið á sjónum en því er örugglega ekki stillt í hóf.
Væri ekki tilvalið að slá súkkulaði og sjó saman í pakka þannig að allir verði mjúkir,afslappaðir,stresslausir og vellyktandi um jólin. Líti út og ilmi eins og girnileg súkkulaði terta. Algerlega táfýlulaust.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.