Réttarfarslegur harmleikur.
31.7.2008 | 21:16
Þessi frétt vekur í senn sorg og furðu og var lestur hennar átakanlegur. Þetta er harmleikur ekki hvað síst þeirra sem eiga um sárt að binda vegna gerða þessa skrímslis, svo er niðurstaða þessa máls, réttarfarslegur harmleikur.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir, „að við ákvörðun refsingar sé litið til þess að maðurinn hafi gerst sekur um mörg kynferðisbrot gegn barnungum stúlkum og að sum þeirra séu mjög alvarleg. Brot hans tóku að hluta til yfir langt tímabil og hann nýtti sér sakleysi stúlknanna og trúnað og traust sem dætur hans og stjúpdóttir báru til hans. Þá hafi framburður hans einkennst af því að hann vilji draga úr ábyrgð sinni og varpa þeim yfir á þolendur misgjörða sinna, en á þessu hafi einkum borið þegar maðurinn lýsti afstöðu sinni til þeirra brota gagnvart stjúpdóttur sinni og annarrar stúlku.“
Ekki verður annað skilið af þessu en að dómurinn telji að þung refsing sé eðlileg og sanngjörn í ljósi brotanna. Fjögurra ára dómur er semsagt þungur dómur í þessu máli að mati réttarins.
Sveiattan bara.
Svo er þolendum dæmdar bætur fyrir það tjón sem þeir hafa hlotið andlega og líkamlega og þær eru svo „ríflegar“ að þær eru samtals rétt rúmlega þóknun þeirra löglærðu sem að málinu komu.
Sveiattan.
Það er ljóst vegna aðkomu barnaverndaryfirvalda að málinu að þau þurfa að taka sig í naflaskoðun, eitthvað brást, svona má ekki gerast.
Nú hefur aftur verið brotið illa gegn þolendum í málinu. Þessi dómur er eins og blaut tuska í andlit þeirra og reyndar í andlit þjóðarinnar allrar, nema þeirra ógeða sem svona stunda, þeir brosa í laumi.
Sveiattan.
![]() |
4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:18 | Facebook
Athugasemdir
Draga fram nafn þessa skrímslis og láta dóm og lög götunnar afgreiða hann því ekki gerir íslenskt réttarkerfi það.
Avenger (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 22:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.