Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Fullvissa ferðamenn um að hér sé öruggt
- Flogið á milli ljósaskipta
- Beint: Kosningafundur eldri borgara með frambjóðendum
- Tafir á þjónustu vegna ágreiningsmála um þjónustu
- Viðgerðir munu taka nokkra daga
- Boða verkföll í fjórum skólum til viðbótar
- Alútboð er nýtt skref inn á spennandi braut
- Litlar líkur á að hraunið nái til mannvirkja
- Drónamyndskeið frá hápunkti gossins í nótt
- Þetta er vitlaus hugmynd
Viðskipti
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
- Óttast að fólk fari aftur að eyða peningum
Eldri færslur
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Gullið verður bónus.
23.8.2008 | 15:46
Hvernig sem leikurinn á morgun fer, kemur íslenska handboltaliðið, strákarnir okkar heim sem sigurvegarar, þjóðhetjur, ekkert minna. Í höfn eru silfurverðlaun í handbolta á Ólympíuleikum, sem er ekkert smáræði í hópíþrótt fyrir litla þjóð eins og Ísland.
Gullið yrði alger bónus, en við megum ekki láta vonbrigði og svekkelsi ná tökum á okkur þótt toppurinn náist ekki, við höfum nú þegar unnið sigur. Höfum sýnt og sannað hvers við erum megnug og að við getum þetta, höfum sýnt að þeir litlu eiga líka möguleika.
Þessi árangur verður um ókomna tíð skólabókardæmi um hvað er mögulegt þótt torsótt virðist.
Það er ekki nokkur vafi á því að vera Íslensku forsetahjónanna á áhorfendabekkjunum og annar stuðningur þeirra hefur verið liðinu hvatning, svo ekki sé talað um andann að heiman, sem hefur verið sterkari en orð fá lýst.
Ég er sannfærður um að strákarnir klára þetta. Ég er að springa af stolti og þjóðernisrembingi og skammast mín hreint ekkert fyrir það.
Áfram Ísland.
„Ég vil fá gullið og þjóðsönginn“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Tenglar
Mínir tenglar
- MYNDAALBÚM Ljósmyndir síðuhafa
- Skagaströnd Heimasíða Sveitarfélagsins Skagaströnd
- Húnahornið Fréttavefur Húnvetninga
- LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
Heimsóknir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 1027595
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- axelma
- beggo3
- emilssonw
- snjolfur
- saemi7
- asthildurcesil
- thorsteinnhgunnarsson
- jensgud
- reykur
- joningic
- nafar
- bofs
- olijon
- gthg
- olafurjonsson
- kristjangudmundsson
- mosi
- josefsmari
- hlf
- johanneliasson
- svarthamar
- heidarbaer
- thruman
- ludvikjuliusson
- stefanjul
- axelaxelsson
- svanurg
- viggojorgens
- rlingr
- boggi
- fosterinn
- arikuld
- trj
- kliddi
- kristbjorn20
- ksh
- helgigunnars
- maggib
- prakkarinn
- hecademus
- skari60
- gudjul
- jonsnae
- krissiblo
- aztec
- kristjan9
- gisgis
- komediuleikhusid
- flinston
- muggi69
- gorgeir
- keh
- arnorbld
- gullilitli
- skarfur
- sveinne
- zerogirl
- finni
- kaffi
- taraji
- keli
- gretarmar
- zeriaph
- fun
- seinars
- hordurj
- esgesg
- jonhalldor
- icekeiko
- kjarri
- siggisig
- bjornbondi99
- gullaeinars
- gustichef
- gusg
- raftanna
- himmalingur
- baldher
- minos
- huldumenn
- valli57
Athugasemdir
Mér leiðist handbolti og Þjóðsöngurinn er enn verri....
Gulli litli, 23.8.2008 kl. 17:13
Ég er þegar farin að fagna. Finnst þetta frábært hjá þeim. Mér líður bara eins og við höfum náð gullinu. Þetta er sigur fyrir mér. Eins og þú segir þá er gullið bara bónus.
Ekki sammála Gulla litla hér að ofan. Handboltinn er mjög skemmtilegur og Þjóðsöngurinn er fínn. Það geta allir sungið hann. Fólk er bara búið að láta segja sér að það sé ekki hægt og því trúir það því. Eins gott að handboltalandsliðið okkar hlustaði ekki á einhverjar svoleiðis neikvæðnisraddir sem sögðu "Þetta er ekki hægt."
Sigrún (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 17:20
Sæll Axel.
Þjóðsöngurinn er ömurlegur. Sama má segja um Ólaf Ragnar. Að mínu mati hefur vera hans á leikunum ekkert með árangur liðsins að gera. Hann er þarna eingöngu til að láta á sér bera eins og honum er tamt.
Hvorttveggja gleymist þó um stundarsakir, meðan leikir handboltalandsliðsins standa yfir.
Liðið er skipað frábærum íþróttamönnum og þjálfarinn og allir sem að þessu ævintýri koma, standa sig einstaklega vel. Hópurinn er sannarlega sómi lands og þjóðar.
Stertimenni í stúkunni breyta engu þar um.
Þetta er eindregið mín skoðun.
Áfram Ísland
Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 21:51
Takk fyrir innlitin.
Kári ég get verið sammála með þjóðsönginn, hann hentar ekki og honum þarf að skipta út. En berum virðingu fyrir honum meðan við höfum hann, ekki satt?
Liðið er frábært og sómi okkar, tek undir það.
En það er umhugsunaratriði að um leið og varaformaður Sjálfstæðisflokksins var sestur á áhorfandabekkinn þá datt botninn úr liðinu!
Kveðja,
Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.8.2008 kl. 23:55
Ég er ekki sammála því að botninn hafi dottið úr liðinu. Að tapa fyrir gríðarsterku liði Frakka með fimm marka mun, er engin skömm. Öll lið eiga sína góðu daga og líka daga þegar allt gengur ekki upp. Liðið átti einfaldlega ekki sinn bezta dag þegar úrslitaleikurinn fór fram og ég held að vera fyrirmanna í stúkunni hafi ekkert haft með það að gera.
Og ég ítreka að mér fannst botninn alls ekki dottinn úr liðinu.
Kveðja,
Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 20:31
Kári ég er alveg sammála þér. Tók of djúpt í árinni.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.8.2008 kl. 10:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.