Tökum eitt skref í einu.

Hvaða bráðræði er þetta, þarf að auka þorsk kvótann strax?  Við þurfum að skoða þetta vel áður en ákvörðun verður tekin um  auknar aflaheimildir.  Ekkert liggur á, það er aðeins mánuður liðinn þorskuraf kvótaárinu.

Þetta  er  ekki  nýr málflutningur. Talsmenn þessa  hafa hamrað á þessu lengi.  

Það læðist að manni sá grunur að þeir reyni nú að nýta sér ástandið í efnahagsmálum til að þvinga þetta fram að óathuguðu máli. Þetta lyktar af lýðskrumi.

Verum ekki þeir þorskar að rasa um ráð fram. Er ekki nóg komið af því í bili?

 
mbl.is Vísindin ráða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Norðmenn og Rússar tóku þá ákvörðun að "rasa um ráð fram" árið 2000.

Þeir höfðu ráðgjöf fiskifræðinga að engu og tókst að fimmfalda á átta árum þann afla sem fiskifræðingar ráðlögðu að veiða.

Mér sýnist kominn tími til fyrir okkur að rasa um ráð fram í þessu efni.

Og þó fyrr hefði verið.

Árni Gunnarsson, 7.10.2008 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband