Endurmenntun og reynslulausn

efnaformúlaVar það ekki umræddur Jónas Ingi Ragnarsson „líkfundarmaður“, sem sat við hliðina á líkinu í bílnum  frá Reykjavík austur á Neskaupstað og staðhæfði að honum hefði verið ókunnugt um að sessunautur hans hefði verið í bílnum og hvað þá látinn?

Það verður gaman að heyra hvaða skíringar hann gefur á veru sinni í verksmiðjunni og því sem hann taldi vera framleitt þar.  

Jólakortaframleiðsla gæti hljómað trúlega á þessum árstíma.jólakort

Svo er það Tindur blessaður sem núna er kominn á tindinn eftir að hafa, í boði ríkisins, stundað af kappi nám í efnafræði við Háskóla Íslands, meðan hann sat inni fyrir fyrri brot.

Báðir þessir herrar voru á reynslulausn í boði ríkisins.

Svo verður þeim í fangelsinu gefin kostur á að stunda eitthvert hagnýtt nám svo þeir geti komið undir sig fótunum á ný,  þegar þeim verður sleppt aftur á reynslulausn eftir að hafa setið af sér hluta komandi dóms.


mbl.is Höfuðpaurar á reynslulausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tindur Jónsson, sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir árás með sveðju, árið 2006

Fær fólk reynslulausn daginn eftir að það fer inn? Sex ára fangelsi 2006 og hann er kominn út án eftirlits og farinn að stunda glæpi á fullu 2008?

linda (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 09:29

2 identicon

Nákvæmlega, ætti fólk ekki að sitja inni a.m.k. helminginn af tímanum. Þetta var nú engin smá árás sem hann framdi. Ísland er algjör krimmaparadís, eitt ár á Kvíabryggju fyrir sveðjuárás og mánuður á hrauninu fyrir barnanauðgun.

hanna (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 10:29

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

linda og hanna, takk fyrir innlitið.

Já það er löngu ljóst að eitthvað er verulega bogið við þetta kerfi alltsaman. Það eru veitir stórglæpamönnum afslátt á afslátt ofan svo þeir komist sem fyrst í drift aftur.

En borgi Jón eða Gunna ekki á gjalddaga þá er það ekki elsku mamma, þá vantar ekki hörkuna og aðgerðir. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2008 kl. 10:45

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sagði ekki Geir H. Haarde, að nú yrðum við að "framleiða, framleiða, framleiða!"?

Guðmundur Ásgeirsson, 17.10.2008 kl. 21:35

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jú og vafalítið má telja þetta nýsköpun í atvinnumálum.

(Þetta eru óábyrg skrif)

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.10.2008 kl. 06:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.