Endurmenntun og reynslulausn

efnaformúlaVar ţađ ekki umrćddur Jónas Ingi Ragnarsson „líkfundarmađur“, sem sat viđ hliđina á líkinu í bílnum  frá Reykjavík austur á Neskaupstađ og stađhćfđi ađ honum hefđi veriđ ókunnugt um ađ sessunautur hans hefđi veriđ í bílnum og hvađ ţá látinn?

Ţađ verđur gaman ađ heyra hvađa skíringar hann gefur á veru sinni í verksmiđjunni og ţví sem hann taldi vera framleitt ţar.  

Jólakortaframleiđsla gćti hljómađ trúlega á ţessum árstíma.jólakort

Svo er ţađ Tindur blessađur sem núna er kominn á tindinn eftir ađ hafa, í bođi ríkisins, stundađ af kappi nám í efnafrćđi viđ Háskóla Íslands, međan hann sat inni fyrir fyrri brot.

Báđir ţessir herrar voru á reynslulausn í bođi ríkisins.

Svo verđur ţeim í fangelsinu gefin kostur á ađ stunda eitthvert hagnýtt nám svo ţeir geti komiđ undir sig fótunum á ný,  ţegar ţeim verđur sleppt aftur á reynslulausn eftir ađ hafa setiđ af sér hluta komandi dóms.


mbl.is Höfuđpaurar á reynslulausn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tindur Jónsson, sem dćmdur var í sex ára fangelsi fyrir árás međ sveđju, áriđ 2006

Fćr fólk reynslulausn daginn eftir ađ ţađ fer inn? Sex ára fangelsi 2006 og hann er kominn út án eftirlits og farinn ađ stunda glćpi á fullu 2008?

linda (IP-tala skráđ) 17.10.2008 kl. 09:29

2 identicon

Nákvćmlega, ćtti fólk ekki ađ sitja inni a.m.k. helminginn af tímanum. Ţetta var nú engin smá árás sem hann framdi. Ísland er algjör krimmaparadís, eitt ár á Kvíabryggju fyrir sveđjuárás og mánuđur á hrauninu fyrir barnanauđgun.

hanna (IP-tala skráđ) 17.10.2008 kl. 10:29

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

linda og hanna, takk fyrir innlitiđ.

Já ţađ er löngu ljóst ađ eitthvađ er verulega bogiđ viđ ţetta kerfi alltsaman. Ţađ eru veitir stórglćpamönnum afslátt á afslátt ofan svo ţeir komist sem fyrst í drift aftur.

En borgi Jón eđa Gunna ekki á gjalddaga ţá er ţađ ekki elsku mamma, ţá vantar ekki hörkuna og ađgerđir. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2008 kl. 10:45

4 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Sagđi ekki Geir H. Haarde, ađ nú yrđum viđ ađ "framleiđa, framleiđa, framleiđa!"?

Guđmundur Ásgeirsson, 17.10.2008 kl. 21:35

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jú og vafalítiđ má telja ţetta nýsköpun í atvinnumálum.

(Ţetta eru óábyrg skrif)

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.10.2008 kl. 06:29

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband