Ærlega vanhæfir ?

valtyr_jpg_280x800_q95Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari gerði nýlega þá kröfu að Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttadómari  yrði úrskurðaður  vanhæfur að dæma mál gegn manni sem sakaður er um nauðgun á salerni á Hótel Sögu.  

Valtýr taldi að ástæða væri til að efast um að Jón Steinar muni fylgja viðurkenndum og eðlilegum leikreglum við mat á sönnunargögnum, sökum bogi_ngreinar sem Jón Steinar hafði ritað í Lögréttu nýverið. Hæstiréttur hafnaði kröfunni.

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari og Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, hafa verið skipaðir af Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra til að rannsaka starfsemi viðskipta- bankanna þriggja, í aðdragandanum að falli þeirra.

Valtýr Sigurðsson telur þá félaga ekki vanhæfa, þrátt fyrir að sonur Valtýs, Sigurður, sé forstjóri Exista og sonur Boga, Bernhard, sé framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Stoða. Hvort tveggja eru útrásarfyrirtæki með tengsl við fallna banka, Kaupþing og Glitni.

vogaskálarréttlætisinsValtýr telur tengsl sín við son sinn Sigurð ekki líkleg til að hafa áhrif á að hann fylgi viðurkenndum og eðlilegum leikreglum við mat á sönnunargögnum!

Er nema von, með skipan þessara manna til verksins, að fólk efist um að tilgangur rannsóknarinnar sé ærlegur!

.


mbl.is Álíta sig hæfa til að rannsaka syni sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband