Ingibjörg, svona gera leiðtogar ekki.

BritishEmpireAð fela Bretum sjálfdæmi, hvort þeir komi eða ekki er einhver undarlegasta og aumasta ákvörðun í Íslenskri pólitík fyrr og síðar.

Hvernig hefði farið í landhelgisdeilunni við Breta forðum hefði slíkum dulum verið veifað og Bretum veitt sjálfdæmi hvort þeir veiddu í landhelgi eða ekki?

Sem betur fer voru ekki svona liðleskjur í ráðherrastólunum í þá daga.

Ofan á allt sem á undan er gengið hafa Bretar  það nú áImba og Geir2 sínu valdi að niðurlægja þjóðina í boði ríkistjórnar Íslands,  vitandi um afstöðu þjóðar og þings.  Sagan segir að slíka smámuni setji þeir ekki fyrir sig, þjóni það þeirra hagsmunum.

Komi Bretar má fullyrða að ríkisstjórn lýðveldisins Íslands hafi aldrei rekið rýting í bak þjóðarinnar með jafnkröftugum og ákveðnum hætti og nú.

Ég og margir fleiri bundum vonir við að Ingibjörg yrði framtíðar leiðtogi þjóðarinnar.

En Ingibjörg svona gera þjóðarleiðtogar ekki. Svei.

.

Burt með spillingarlið allra flokka....... enga Breta hingað til landvarna í desember, aldrei.


mbl.is Kyssir ekki á vönd kvalaranna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér finnst þyngra en tárum taki að hún hafi í alvöru gert þetta...svo mikið virðingarleysi fyrir -llum landsmönnum. Segi líka svei við þessum gjörningi.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.11.2008 kl. 15:07

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það Katrín

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.11.2008 kl. 15:11

3 identicon

Sæll Axel.

Sammála þér í þessu. Þú getur þó huggað þig við það að Össur talar tæpitungulaut um þetta varnarflug Bretanna og útilokar það með öllu. Vonandi verða hans sjónarmið ofan á.

Kveðja,

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 19:36

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sæll Kári, takk fyrir undirtektirnar. Já Össur talar tæpitungulaust ekki vantar það, ég tek því fagnandi. En ég óttast hið versta eigi að síður.

Það er vaxandi reiði meðal almennings og það er bara spurning hvenær sýður uppúr. Koma Bretana kann að verða neistinn sem.....

Kveðja, Axel.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.11.2008 kl. 05:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband