Heimdallur afneitar Davíð

heimdallur1Þeirri skoðun vex ört fiskur um hrygg innan Sjálfstæðisflokksins að Seðlabanastjórnin og þá sér í lagi Davíð Oddson sé til óþurftar og þurfi að víkja.

Ekki nóg með það, Sjálfstæðismenn eru farnir að tjá sig um þessa skoðun opinberlega sem einhvertíma hefðu þótt tíðindi þegar heilagur Davíð á í hlut. Nú hefur Heimdallur stigið á vagninn.

Geir segir Sjálfstæðisflokkinn lýðræðisflokk og þar ríkti málfrelsi. Öllum sé þar frjálst að tjá sig. En hann ætlar bara ekki að leggja við hlustir.  Davíð skal sitja hvað sem það kostar.

Ef Geir fer ekki að hlusta á þjóðina og sér í lagi sína eigin flokksmenn þá má undarlegt teljast ef ekki kemur mótframboð til formanns á flokksþinginu í endaðan janúar. Fylgispekt Geirs við Davíð kann að kosta þá báða sín embætti.

„Ég veit“. Segir Davíð.

Hvað er það sem Davíð veit, sem hræðir Geir?  


mbl.is Gagnrýni of harkaleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.